Fréttir

Körfubolti | 17. nóvember 2003

Tveir leikir gegn Tindastóli á fjórum dögum - sá fyrri á morgun, þriðjudag, í Sláturhúsinu við Sunnubraut

Næsti andstæðingur okkar er Tindastóll frá Sauðárkróki. Á morgun, þriðjudag, mætir Keflavík Tindastóli í Intersport-deildinni og síðan á föstudag mætast félögin aftur í undanúrslitum Hópbílabikarsins. Eflaust myndu bæði liðin frekar vilja vinna seinni leikinn, ef aðeins mætti velja annan, en svo er ekki og því má gera ráð fyrir að Keflvíkingar reyni af öllum mætti að leggja Sauðkrækinga tvisvar í röð.

Þjálfari og aðal leikmaður Stólanna er Keflvíkingurinn Kiddi "Gun" Friðriksson, en hann hefur leikið einkar vel það sem af er þessari leiktíð, m.a. skorað 21 stig að meðaltali í leik. Aðrir meginleikmenn Króksara eru þeir Clifton Cook (23 st., 10 stoðs.), Nick Boyd (18 st., 10 frák.) og Adrian Parks (16 st.). Auk þeirra eru í stórum hlutverkum þeir Axel Kárason og Helgi R Viggósson. Að síðustu má nefna Einar Örn Aðalsteinsson og aftur hefur snúið til liðsins kylfingurinn Óli S Barðdal. Króksarar hafa leikið ágætan bolta í vetur, hafa unnið 3 og tapað 3 í deildinni og svo lögðu þeir Hauka í 8-liða úrslitum Hópbílabikarsins. Gaman verður að kljást við spræka norðanmenn á morgun.

Að loknum sex umferðum eru meðaltöl leikmanna Keflavíkur úr leikjum Intersport-deildarinnar sem hér segir:

  • Stig: Derrick 25, Nick 17, Falur 14, Gunnar E 12, Magnús 11 og Jonni 8
  • Fráköst: Derrick 10, Nick 10, Gunnar E 4, Jonni 4
  • 2ja stiga nýting (yfir 10 skot): Gunnar E 64%, Derrick 60%, Jonni 59%, Hjörtur 58%
  • 3ja stiga nýting (yfir 10 skot): Falur 45%, Gunnar E 40%, Gunnar S 39%, Magnús 31%
  • Vítanýting (yfir 5 skot): Falur 100%, Davíð 100%, Magnús 83%, Hjörtur 83%, Derrick 73%
  • Stoðsendingar (alls): Nick 30, Gunnar E 22, Derrick 18, Magnús 18, Falur 16
  • Villur (alls): Derrick 22, Nick 21, Jonni 16, Magnús 15
  • Bolta náð (alls): Nick 13, Derrick 12, Sverrir 10, Hjörtur 10
  • Varin skot (alls): Derrick 9, Nick 4, Jonni 3
  • Bolta tapað (alls): Nick 27, Derrick 17, Hjörtur 10
  • Fjöldi leikja: Derrick, Nick, Magnús og Hjörtur - allir hafa leikið alla 6 leikina
  • Leiknar mínútur: Nick 34, Derrick 33, Gunnar 24, Falur 21, Magnús 20