Tveir leikir í Intersportdeildinni og einn í 1. deild kvenna áður en að Bikarúrslitum kemur
Þótt öll athygli beinist nú að úrslitaleiknum í Bikarkeppninni má ekki gleyma því að bæði karla- og kvennaliðið eiga erfiða deildarleiki áður en kemur að fjörinu í Höllinni þann 8. febrúar. Stúlkurnar leika gegn KR í Vesturbænum á laugardaginn og fá þá tækifæri til að kljást við sterkara KR lið en þær mættu í úrslitum Kjörískeppninnar skömmu fyrir jól. Erlendi leikmaðurinn þeirra, J. Stomski, virðist vera að finna taktinn og skoraði um daginn 30 stig í sigri gegn ÍS sem einnig er á uppleið. Ljóst er að KR er að nálgast fyrri styrk og verður því leikurinn í DHL-höllinni góður prófsteinn fyrir Bikarúrslitin.
Strákarnir eiga tvo leiki fram að Bikarúrslitum. Fyrst fara þeir í Borgarnes á föstudaginn og leika gegn Skallagrími og síðan koma Hamrarnir úr Hveragerði til Keflavíkur á mánudag. Það hefur oft reynst Keflvíkingum erfitt að leika í Borgarnesi og engin ástæða er til að ætla að því verði öðru vísi farið nú. Skallarnir hafa styrkt lið sitt verulega og vilja allt til þess vinna að falla ekki úr úrvalsdeildinni annað árið í röð. Þeir skiptu um Kana um jólin og fengu síðan tvo júgóslavneska bræður til liðsins skömmu síðar. Þeir bræður eru greinilega hörku körfuboltamenn og vöktu athygli á dögunum í spennuleik gegn Tindastóli. Okkar lið hefur verið á sigurbraut upp á síðkastið og unnið fjóra síðustu leiki. Vonandi heldur sigurgangan áfram.
Síðan kemur Hamar, en þeir hafa einnig styrkt sig í baráttunni, enda metnaður til að komast í úrslitakeppnina, eða a.m.k. forðast fall. Keith fyrrum KR-ingur Vassel gekk til liðs við þá eftir jólin, en þar fyrir utan hefur Sævar farið á kostum í síðustu leikjum, setti m.a. 39 stig um daginn. Keflavík verður þó að teljast verulega sigurstranglegt í þessum leik, enda liðið í Bikarformi.