Tveir mikilvægir leikir eru framundan, (1) Toppslagur í Intersport deildinni gegn KR á föstudaginn og (2) Skallagrímur í Bikarkeppninni á sunnudaginn
Kjörísinn endaði vel fyrir Keflavík, en ekki gefst tími til að slaka á. Næsta föstudag mætir topplið Intersport deildarinnar, KR, í heimsókn og á sunnudaginn halda Keflvíkingar til Borgarness og etja kappi við Skallagrímsmenn. Kíkjum aðeins á þessar viðureignir.
KEF – KR
Leikurinn gegn KR í keppni hinna fjögurra fræknu s.l. föstudag sýndi vel hversu megnugt Keflavíkurliðið getur verið með aggressívum varnarleik. KR-ingar eru hávaxnir í mörgum stöðum og geta því gert skyttum okkar erfitt fyrir með stífri vörn. Þeir hafa einnig á að skipa einum besta Kana landsins, Darryl Flake, sem er aðeins 22ja ára en leikur af mikill yfirvegun og tækni í teig andstæðinganna.
Auk Flake eru margir góðir leikmenn í KR sem sumir hafa þó enn ekki náð að sýna hvað í þeim býr. Þetta gildir sérstaklega um þá Óðinn Ásgeirsson og Baldur Ólafsson. Veikleiki KR-inga er þó tvímælalaust skortur á bakvörðum og slakar sendingar eins og kom í ljós í Kjörísnum, en þeir voru afar slakir gegn pressuvörn og grimmri svæðisvörn Keflavíkurliðsins.
Með sigri á KR kæmist Keflavík á topp deildarinnar og nú er bara að vona að leikmenn nái upp sömu baráttu og í síðasta leik, því án góðs varnarleiks munum við lenda í miklum vandræðum.
SKA – KEF
Á sunnudaginn hefst Bikarkeppni KKÍ & Doritos með leik okkar manna gegn Skallagrími. Fyrirfram verður að ætla okkar menn sigurstranglega en hafa ber þó í huga að Borgnesingar eru ávallt skeinuhættir á heimavelli. Keflavík hefur oft tapað í Borgarnesi og þeir sýndu styrk sinn svo um munar þegar þeir lögðu Grindavík fyrir skömmu. Valur Ingimundarson hefur tekið fram skóna og keppnisskap hans og reynsla blása eflaust vindi í segl heimamanna.
Mesta hættan í þessum leik felst í hugsanlegu vanmati sem skotið getur upp kollinum þegar getumunur á pappírnum er fyrir hendi. Vanmat er ekki eitthvað sem menn leika sér að en gerist engu að síður oft. Það kannast allir við, í öllum löndum, í öllum íþróttagreinum.
Við verðum bara að muna að þetta er bikarleikur og í bikarleikjum fá menn bara eitt tækifæri!
Áfram Keflavík!