Fréttir

Körfubolti | 3. desember 2003

Tveir portúgalskir sigrar á frönskum liðum í A-riðlinum

Portúgölsku liðin halda áfram að koma á óvart í viðureignum sínum gegn þeim frönsku. Heimasíðan er farin að halda að munurinn á þessum deildum sé minni en talað var um í haust. Samt gildir Frakkland sem eitt allra besta land Evrópu en Portúgal er slakara, þó þeir tilheyri A-þjóðum (Ísland er síðan svolítið vel fyrir neðan miðju og telst vera B-þjóð).  

Í A-riðli Vesturdeildarinnar eru tvö portúgölsk lið og tvö frönsk og áttust þau við í fjórðu umferðinni í gær og í dag. Í gær tapaði Dijon afar óvænt fyrir Queluz á heimavelli með 60 stigum gegn 79 (!). Dijon er í 3ja sæti í Frakklandi og Queluz er einnig í því 3ja í Portúgal. Svo í kvöld fór Vichy (lið Pavels Ermolinskís) til Olivarense sem er í 4ða sætinu í Portúgal. Olivarense gerði sér lítið fyrir og vann auðveldan sigur, 93-77.

Staðan að loknum 4 umferðum er hnífjöfn, þar sem öll liðin hafa unnið tvo leiki og tapað tveimur. Eins og rætt hefur verið um hér á heimasíðunni, þá er aðstöðumunurinn mikill milli þessara landa og má geta þess að á heimaleikjum Vichy og Dijon í Bikarkeppni Evrópu hafa verið 2500-3300 áhorfendur, en í Portúgal aðeins um 5-800, líkara því sem gerist hér á landi. Í þessu ljósi eru úrslitin enn undarlegri, sérstaklega útisigur Queluz gegn toppliði Dijon.