Tveir sigrar í dag.
Drengirnir í 9. flokki leika nú aðra umferð Íslandsmótsins hér í Toyotahöllinni, um helgina, en þeir byrjuðu mótið í dag með tveimur sigrum.
Fyrri leikurinn var móti Stjörnunni og byrjuðu okkar drengir leikinn á að komast í 14 - 0. Stjórnudrengir tóku þó sína rispu og náðu að minnka muninn í fimm stig en Keflavíkurdrengir náðu að setja í hærri gír og unnu að lokum með 15 stiga mun.
Seinni leikurinn var á móti Fsu drengjum sem voru að koma upp úr C-riðli og var leikurinn frekar ójafn og sigur okkar drengja nokkuð öruggur.
Nú er bara að klára þá leiki sem eftir eru á morgun og komast upp í A-riðilinn, en drengirnir leika á morgun við lið Tindastóls og lið þórs/Hamars.
Áfram Keflavík !