Fréttir

Körfubolti | 24. janúar 2003

Tvöföld barátta gegn Haukum í kvöld, konur kl. 18 og karlar kl. 20

Landsbankinn hefur boðið öllum nemum úr skólum bæjarins á leikina í kvöld. Þeir félagar Damon og Ed gengu í skólana í gær og dreifðu boðsmiðum til krakkanna, og krökkunum er einnig frjálst að taka foreldra sína með að kostaðarlausu. Vonandi bregðast bæjarbúar vel við þessu boði og fjölmenna á leikina, því gera má ráð fyrir góðri skemmtun.  

Stúlkurnar hafa unnið Hauka nokkrum sinnum í vetur og teljast eflaust sigurstranglegar í kvöld. Þó hafa Haukastúlkur styrkst verulega á liðnum vikum. Þær hafa ágætan Kana innanborðs og einnig hávaxna “Bosmann” stúlku sem hirðir ógrynni af fráköstum og bindur vörnina saman. Athyglisverðasti leikmaðurinn í Haukaliðinu er þó hin 14 ára Helena Sverrisdóttir, sem þrátt fyrir ungan aldur er orðinn ein fremsta körfuboltakona landsins og hefur t.d. náð að skora yfir 30 stig í leik. Ótrúlegt efni þar á ferð. Okkar stúlkur sýndu á miðvikudaginn að þær eru ekki ósigrandi en þær eru hins vegar illsigranlegar, svo mikið er víst, og ljóst er að þær vilja örugglega ekki tapa tveimur leikjum í röð.

Strákarnir hafa leikið tvisvar gegn Haukum í vetur, bæði í deild og bikar. Báðir leikirnir hafa verið jafnir og spennandi framan af leik, en í báðum leikjum hefur góður endasprettur Keflavíkur gert út um leikinn. Nú síðast í bikarkeppninni, þegar Sverrir Þór og Guðjón Skúlason bundu saman vörn og sókn og Keflavík skoraði um 20 stig á móti 4 á síðustu þremur mínútunum eða svo.

Stevie Johnson hefur að öðrum ólöstuðum verið besti maður Íslandsmótsins til þessa og virðist geta gert allt á vellinum og um daginn skoraði hann 46 stig í leik gegn Njarðvíkingum. Auk hans eru í Haukaliðinu ágætar skyttur, Marel, Ingvar og Halldór, og eins baráttuglaðir ungir piltar sem leikið hafa ágætlega í vetur.

Okkar menn hafa unnið síðustu þrjá leiki nokkuð örugglega og hefur leikur liðsins verið skynsamur og yfirvegaður í lokin, þó byrjunin hafi verið kaflaskipt. Ed Saunders fellur vel inn í leik liðsins, þótt ekki megi hinir leikmennirnir hætta að taka fráköst og bíða eftir honum. Damon hefur kannski ekki verið jafn öflugur og oft áður, þó sýndi hann gegn ÍR á dögunum hvers hann er megnugur þegar hann tekur sig til. Skytturnar hafa fundið sig á víxl, stundum Gaui, stundum Maggi, stundum Gunni og stundum Falur. Ef einhverjir eru heitir í kvöld eigum við góðan séns á sigri.

Nú vonumst við bara eftir góðri skemmtun fyrir bæjarbúa í kvöld – ÁFRAM KEFLAVÍK!