Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 6. ágúst 2005

U 16 ára landsliðið spilar í A deild að ári. Þröstur með stórleik.

Íslenska U 16 ára landsliðið sigraði Belga í dag 64-56 og spilar því í A deild að ári. Leikurinn í dag var hreinn úrslitaleikur um hvor liðið léki í A deild og það urðu því Belgar sem þurftu að sæta sig við að spila í B deild að ári. Okkar maður Þröstur Jóhannsson hefur verið að spila frábærlega á mótinu og átt hvern stórleikinn á fætur öðrum. Þröstur var stigahæstur í dag ásamt Hirti Einarssyni úr Njarðvík með 21 stig og 12 fráköst. Loka leikur liðsins er á morgun á móti Grikkjum um hvort liðið hampar 13 sæti mótsins. Það verður jafnframt 8 leikur liðsins á 10 dögum.

Þröstur  Jóhannsson og  Hjörtur Einarsson hafa fengið boð um að taka þátt í Adidas Superstar Camp sem fram fer í Berlín dagana 17. – 21. ágúst.
Er boðið mikil viðurkenning fyrir strákana enda um gríðarsterkar æfingabúðir að ræða þar sem aðeins efnilegustu leikmönnum Evrópu er boðið að taka þátt. 

„Það er búið að koma töluvert að máli við mig varðandi íslensku leikmennina, t.d. hafa eitthvað af Bandarískum háskólum verið að spyrjast fyrir um strákana. En það eru fyrst og fremst stórkostlegar fréttir að Þresti og Hirti hafi verið boðið að taka þátt í Adidas æfingabúðunum því þær eru mjög virtar og þetta er stór viðurkenning fyrir íslenskan körfuknattleik,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari U 16 ára liðs Íslands, í samtali vf.is.