Eins og netverjar hafa tekið eftir þá hefur spjallinu verið lokað af og til upp á síðkastið. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að sumir spjallverja geta ekki látið það ógert að svívirða nafnkunna menn í skjóli nafnleyndar á opinberu spjallsvæði. Það hljóta allir að sjá að svoleiðis hátterni getur ekki liðist. Vefstjóri getur heldur ekki setið yfir spjallinu og eytt út óæskilegum pósti og verður því að loka spjallinu þegar svo ber undir. Hins vegar er það vilji manna að halda úti spjallinu, því það getur aukið fjörið og ánægjuna í kringum körfuna, þegar vel tekst til. Því munum við líklega opna það aftur, en ef ekkert breytist er erfitt að halda því úti.