Fréttir

Körfubolti | 9. febrúar 2004

Umgjörðin til fyrirmyndar

Keflavík og Njarðvík báru sameiginlega ábyrgð á framkvæmd Bikarúrslitaleiksins, ásamt Lýsingu og Breiðabliki, en þeir lögðu til leikmenn á ritaraborðið. Heimasíðan vill hrósa öllum sem að leiknum komu fyrir frábæra umgjörð. Lukkudýrin stóðu sig vel, tónlistin var pottþétt, kynnirinn öflugur, leikskráin góð og bolirnir frá Lýsingu settu mikinn svip á áhorfendur sem skiptust í grænt og blátt svæði. Kalli Bjarna var flottur í hálfleik og peppaði upp stemminguna og Helgi Braga vann sér inn 100 þúsund kall í skemmtilegum skotleik Lýsingar sem var til fyrirmyndar. Og rúsínan í pylsuendanum voru áhorfendur sem hvöttu sín lið látlaust allan tímann. Og þó á engan skuli hallað ber sérstaklega að nefna frammistöðu stuðningssveitar Keflvíkinga sem með taktföstum trommuslætti stjórnuðu hvatningu okkar manna allan leikinn. Það þarf nefnilega samstillt átak margra til að leikur sem þessi fari vel fram og sú varð raunin í þetta skiptið. Til hamingju með það, allir!