Fréttir

Körfubolti | 22. janúar 2005

Undanúrslitaleik kvenna frestað

Eins og margir vita hefur skæð flensa verið á sveimi hér um slóðir undanfarnar vikur. Okkar körfuboltadömur hafa ekki farið varhluta af þessari flensu og sú leiðinlega staða kom upp í gær og í dag að sex fastamenn úr meistaraflokki kvenna voru lagstir í rúmmið með flensu. Af þeim sökum var sótt um frestun á leik í undanúrslitum í bikarnum gegn Haukum sem fara átti fram á morgun, sunnudag. Heimild er í reglugerð KKÍ um körfuknattleiksmót að sækja um frestun í tilfellum sem þessum, en í 14. grein segir:

"Mótanefnd KKÍ er heimilt að taka ákvörðun um frestun leiks vegna óveðurs, sjúkdómsfaraldurs eða af öðrum gildum ástæðum. Mótanefnd er heimilt að afla þeirra gagna sem hún telur þurfa til að taka ákvarðanir um frestun leikja."

Mótanefnd tók vel í okkar beiðni þar sem um svo stóran hluta liðsins var að ræða. Framvísað verður læknisvottorðum vegna veikindanna. Þetta er leiðinlegt mál, en alls kostar óviðráðanlegt og nú bíðum við eftir því að stúlkurnar nái bata, en vonum jafnframt að önnur lið, jafnt okkar sem annarra, lendi ekki í svipuðum aðstæðum.

Mótanefnd mun von bráðar tilkynna nýjan leikdag.