Undanúrslitaleikur Keflavíkur og Grindavíkur í Poweradebikarnum á sunnudaginn
Undanúrslitaleikur Keflavíkur og Grindavíkur í Powerade-bikar karla fer fram í Toyotahöllinni sunnudaginn 27. janúar nk. Leikurinn hefst kl. 15.00 og verður í beinni útsendingu á RÚV. Eins og alþjóð veit eiga Keflvíkingar titil að verja eftir sigur á Tindastóli í úrslitum bikarsins í febrúar 2012.
Þá verður undanúrslitaleikur Snæfells og Keflavíkur í Powerade-bikar kvenna fer fram laugardaginn 26. janúar en sá leikur fer einnig fram kl. 15.00.
Keflvíkingar eru hvattir til að fjölmenna á báða þessa leiki og styðja við liðin í vegferð sinni í bikarúrslitaleikinn í Laugardalshöll. Það væri nú ekki amalegt ef bæði lið kæmust áfram og léku til úrslita.