Undirbúningstímabilið farið á fullt
Nú er undirbúningurinn fyrir komandi vetur farinn á fullt og eiga Keflavíkurliðin leiki í Lengjubikarnum á næstu dögum. Leikjaplanið hefst í kvöld þar sem Keflavík heldur í Kópavoginn og mætir Breiðablik í smáranum kl 19:15. Á laugardaginn eiga karlarnir svo annan leik í TM höllinni en þá mæta þeir Skallagrím kl 16:30. Á mánudaginn er svo komið að stelpunum sem eiga leik gegn Njarðvík í TM höllinni kl 19:15.
Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja liðin okkar. Kvennaliðið er nú fullskipað þar sem erlendi leikmaðurinn, Melissa Zornig, kom nýlega til landsins og er byrjuð að æfa á fullu.
Við eigum enn eftir að fá erlendan leikmann í karlaliðið en að öðru leiti er hópurinn orðinn nokkuð þéttur og eru þeir búnir að æfa vel í sumar.