Unglingaflokkur byrjar nýtt tímabil á sigri
Unglingaflokkur karla hóf tímabilið sitt á góðum sigri gegn KR eftir framlengdan leik í DHL höllinni í gærkvöldi. Lokatölur leiksins 86-95 fyrir Keflavík.
Þjálfari liðsins er Hjörtur Harðarson.
Magnús Már Traustason átti stórleik fyrir gestina og skoraði 47 stig í leiknum.
Stigaskor Keflvíkinga:
Magnús Már | 47 |
Arnór Sveinsson | 18 |
Arnór Ingi Ingvason | 16 |
Daði | 10 |
Kristján | 4 |
Næsti leikur hjá strákunum Sunnudaginn 9. október þegar þeir heimsækja Breiðablik í Kópavog. Leikurinn hefst kl. 16:00