Fréttir

Karfa: Yngri flokkar | 17. nóvember 2010

Unglingaflokkur kvenna lagði KR/Fjölni

Stúlkurnar í unglingaflokku unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu á mánudagskvöld í Grafarvoginum þegar þær sóttu sameiginlegt lið KR/Fjölnis heim. Stelpurnar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru fljótt komnar með góða forystu sem þær létu aldrei af hendi. Leikur liðsins var mjög vel leikinn á köflum og skemmtilegur á að horfa.

Keflavík – KR/Fjölnir:  64 – 58 (33 – 23)

Stigaskor: Lovísa 13, Telma Lind 12, Ingunn Embla 11, Sandra Lind 8, Aníta Eva 7, Katrín Fríða 4, Soffía Rún 4, Árný Sif 3 og Sigrún 2.

Sjá má nokkrar myndir frá leiknum á Karfan.is með því að smella hér

Næsti leikur liðsins verður mánudaginn 29. nóv. kl. 18.30 þegar nágrannar okkar úr UMFN koma og heimsækja Toyota höllina.