Fréttir

Körfubolti | 10. mars 2003

Unglingaflokkur og 9. flokkur kvenna hjá Keflavík urðu Bikarmeistarar um helgina

Keflavík hefur mikla sérstöðu sem "Bikarlið" í yngri flokkum á Íslandi, enda hefur félagið alls orðið 49 sinnum Bikarmeistari í yngri flokkum, næstir koma KR-ingar með 19 slíka titla.

Tveir Bikartitlar bættust í hópinn um helgina, þegar 9. flokkur kvenna lagði Njarðvík í úrslitum og síðan þegar unglingaflokkur kvenna vann Hauka í frábærum háspennuleik.

Keflavík varð bikarmeistari í 9. flokki kvenna eftir 55-31 sigur á Njarðvík í fyrsta úrslitaleik dagsins. María Ben Erlingsdóttir var valinn maður leiksins en María skoraði 13 stig og tók 13 fráköst í leiknum. Félagi hennar Bryndís Guðmundsdóttir átti einnig prýðisleik, tók 16 fráköst og gaf 9 stoðsendingar auk 7 stiga. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir var atkvæðamest hjá Njarðvík með 15 stig, 12 fráköst og 5 stolna bolta.

Keflavík varð síðan bikarmeistari í Unglingaflokki kvenna eftir 57-54 sigur á heimastúlkum í Haukum í æsispennandi úrslitaleik. Svava Ósk Stefánsdóttir hjá Keflavík var valinn maður leiksins en Svava skoraði 20 stig, tók 9 fráköst, varði 7 skot, stal 9 boltum og gaf 6 stoðsendingar í leiknum. Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest hjá Haukum með 27 stig, 9 fráköst og 8 stolna bolta. Þær María Ben Erlingsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Guðrún Harpa Guðmundsdóttir urðu allar tvöfaldir bikarmeistarar með Keflavík í dag og María Ben náði tvennu í báðum úrslitaleikjum og gerði samtals 30 stig og tók 27 fráköst í leikjunum tveimur.

Nánari umfjöllun um bikarúrslitin er á heimasíðu KKÍ, www.kki.is.

Í kjölfar þessara sigra er heildartitlafjöldi Keflavíkur kominn í 162!