Fréttir

Unglingaflokkur skellti sér í Sambíóin Keflavík fyrir stórleik í bikarnum í kvöld
Karfa: Karlar | 15. febrúar 2013

Unglingaflokkur skellti sér í Sambíóin Keflavík fyrir stórleik í bikarnum í kvöld

Í kvöld fer unglinfaflokkur karla í heimsókn til Njarðvíkur þar sem þeir mæta heimamönnum í 4-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ. Leikurinn hefst kl. 18.00 og eru Keflvíkingar hvattir til að láta sjá sig og hvetja strákana til sigurs. Uppistaðan í unglingaflokki Keflavíkur eru þeir leikmenn sem bera uppi meistaraflokk félagsins að undanskildum tveimur erlendum leikmönnum, Magnúsi Þór Gunnarssyni, Darrel "Ketil" Lewis og Almari Guðbrandssyni. 

Kapparnir skelltu sér á Die Hard 5 í gær til að hita upp fyrir leikinn en Sambíóin í Keflavík eru góður bakhjarl körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.

Mynd: Nokkrir leikmenn unglingaflokks ásamt þjálfara liðsins, Jóni "Kroppi" Eðvaldssyni.