Unglingastarfið
Unglingaráðið hefur fundað stíft síðustu daga og er að ganga frá þjálfaramálum fyrir alla 23 flokkana. Stefnt er á að byrja fljótlega efitr að skólar hefjast. Ekki er rétt að útlista strax hverjir verða að þjálfa hvaða flokka, fyrr en búið er að ganga endanlega frá málunum. Einhverjar breytingar gætu enn átt sér stað. Fréttir af þessum málum verða settar inn, strax og gengið hefur verið frá öllum flokkum. (17. ágúst)