Við þykjumst vita að við höfum í gegnum tíðina staðið okkur ágætlega í fréttaflutningi hér á heimasíðunni, en samt hefur skort svolítið á að síðan sé eins og við viljum. Verið er að vinna að uppfærslu og nú má til dæmis loks finna almennilegar upplýsingar um leikmenn undir liðnum "Mfl.karla.". Kíkið endilega á það svæði og látið vita hvernig ykkur líkar. Verið er að vinna sams konar upplýsinga- og myndapakka fyrir kvennaliðið líka, hann kemur innan tíðar. Og svo höldum við bara áfram að reyna að gera síðuna betri . . .