Upphitunarpeysur á yngri flokka kvenna - Mátun í dag
Nú þegar allir kvennaflokkar félagsins standa í fremstu víglínu á Íslandsmóti yngri flokka stendur til að fara í kaup á upphitunarpeysum fyrir flokkana, þannig að heildarútlit þeirra á leikvellinum verði félaginu til sóma í komandi mótum og úrslitum.
Keyptar verða eins upphitunarpeysur og meistaraflokkur kvenna hefur verið í eftir áramót, nema þessar peysur verða bláar, ekki hvítar. K-merkið verður fyrir miðri peysu að framan og Keflavík á erminni. Síðan verður nafn og leiknúmer viðkomandi iðkenda einnig á peysunni.
Mátun fer fram í Toyota höllinni í dag, miðvikudag, sal 2, milli kl. 18.00-20.00. Peysan mun kosta 3.000 kr. fyrir skráða iðkendur.