Fréttir

Uppselt á Þórrablót Keflavíkur
Karfa: Hitt og Þetta | 24. október 2013

Uppselt á Þórrablót Keflavíkur

Staðan í dag er þannig að UPPSELT er orðið á Þorrablót Keflavíkur 2014. Þorrablótsnefndin kveðst hálfklökk yfir þessum frábæru viðtökum enda aðeins vika síðan dagskráin var auglýst.
 
Nú er svo komið að þeir sem hafa pantað miða þurfa að gera upp til að staðfesta miðakaupin enda talsverður fjöldi kominn á biðlista. Þeir sem hafa pantað miða hafa frest til 15. nóvember nk. til þess að ganga frá greiðslu.
 
Hægt er að millifæra á eftirfarandi reikning: 1125-26-000894, kennitala 510894-2009. Einning mun Þorrablótsnefndin vera á öllum heimaleikjum Keflavíkur í körfu, bæði karla og kvenna, með posa en þar verður að auki hægt að nálgast miðana.