Fréttir

Körfubolti | 28. apríl 2004

Uppskeruhátíð yngri flokka - Auddi og Sveppi mæta á svæðið

Uppskeruhátíð yngri flokka verður laugardaginn 8. maí
í íþróttahúsinu við Sunnubraut og hefst kl. 13.00.

Ýmislegt skemmtilegt verður á dagskrá:

Afhending verðlauna og viðurkenninga

  • Yngstu iðkendurnir (5 – 10 ára) fá viðurkenningarskjal fyrir þáttökuna í vetur.
  • Hjá 11 ára og eldri eru veitt einstaklingsverðlaun sem hér segir: mestu framfarir, besti leikmaðurinn, mikilvægasti leikmaðurinn

Pítsuveisla frá Langbest

Keflvíska stelpnahljómsveitin KÓKOS tekur lagið

Og rúsínan í pylsuendanum eru þeir félagar
SVEPPI OG AUDDI
úr 70 mínútum á Popp Tíví

 

Sjáumst öll á Sunnubrautinni laugardaginn 8. maí,

Unglingaráð KKDK