Úrslitakeppni Domino´s deildar kvenna að hefjast - Vanmetum ekki hjarta meistaranna
Á morgun, laugardag, munu Keflavíkurstúlkur spila fyrsta leik sinn í 4-liða úrslitum Domino´s deildar kvenna. Keflavík, sem lenti í 3. sæti deildarinnar, mætir Haukum og fer fyrsti leikurinn fram í Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði kl. 16.00.
Keflavíkurstúlkur hafa ekki leikið jafn vel eftir áramót og þær gerðu fyrir áramót. Hins vegar munu stúlkurnar vera staðráðnar í að sýna sitt rétta andlit í úrslitakeppninni og gera sitt besta til að verja Íslandsmeistaratitilinn. "Það skal aldrei vanmeta hjarta meistara", sagði þjálfari Houston Rockets eitt sinn og ef það eru einhverjir meistarar sem skal ekki vanmeta eru það Keflavíkurstúlkur!!
Keflvíkingar eru hvattir til að láta sjá sig í Hafnarfirði og styðja við stúlkurnar.