Úrslitakeppni karlanna hefst á morgun – nú byrjar fjörið!!
Leikir í fjórðungsúrslitum Íslandsmótsins hafa verið settir á sem hér segir:
- Fimmtudagur 13. mars 2003
19.15 UMFG - Hamar
19.15 KR - UMFN
- Föstudagur 14. mars 2003
19.15 Haukar - Tindastóll
19.15 Keflavík - ÍR
- Laugardagur 15. mars 2003
16.00 Hamar - UMFG
19.15 UMFN - KR
- Sunnudagur 16. mars 2003
19.15 Tindastóll - Haukar
19.15 ÍR - Keflavík
- Mánudagur 17. mars 2003 (ef til þess kemur)
19.15 UMFG - Hamar
19.15 KR - UMFN
- Þriðjudagur 18. mars 2003 (ef til þess kemur)
19.15 Haukar - Tindastóll
19.15 Keflavík - ÍR
Jæja, þá er deildarkepninni lokið og úrslitakeppnin á næsta leiti. Baráttan í deildarkeppninni var nokkuð hörð en okkar menn áttu kannski ekki raunhæfa möguleika á efsta sætinu eftir fyrstu 12 umferðirnar þar sem fjögur töp litu dagsins ljós. En eftir að Ed kom til liðsins unnust 9 af síðustu 10 leikjunum og liðið náði að tryggja annað sætið endanlega með stórsigri á KR fyrir skömmu með jafn mörg stig og Grindavík sem landaði efsta sætinu með jafnri spilamennsku yfir veturinn og góðum sigri á Haukum í næst síðustu umferðinni. Annars vöktu KR-ingar athygli fyrir slakan lokasprett en að sama skapi áttu Njarðvíkingar góðan lokasprett í kjölfarið á Kanaskiptum og Hamarsmenn brettu upp ermar og skutu Snæfellingum og Blikum aftur fyrir sig með þremur sigrum í röð. Þegar deildarkeppnin er metin í heild má kannski segja að Haukar hafi komið einna mest á óvart með því að ná þriðja sætinu, en þar hefur farið fremstur í flokki Stevie Johnson sem leikið hefur hreint frábærlega í allan vetur. Tindastóll og ÍR hafa átt góða spretti inn á milli og siglt nokkuð lygnan sjó allan tímann.
En vindum okkur í það sem framundan er og spáum í leiki morgundagsins. Keflavík hefur leik á föstudaginn gegn ÍR og við fjöllum nánar um þá viðureign á morgun.
- Grindavík – Hamar
Þrátt fyrir sigur Hamars í lokaumferðinni hljóta Deildarmeistararnir að teljast afar sigurstranglegir. Þeir hafa einfaldlega á mun betra liði að skipa, þrátt fyrir að Lewis sé enn ekki orðinn heill heilsu. Seinni Kaninn hlýtur að geta dreift boltanum á skytturnar sem sjá um stigaskorunina. Við spáum Grindavík sigri, 2-0.
- KR – Njarðvík
Viðureignir þessara félaga hafa boðið áhorfendum upp á góða skemmtun á undanförnum árum og er engin ástæða til að ætla að því verð öðruvísi farið í þetta skiptið. Njarðvík er á uppleið en KR á niðurleið, þannig að við spáum Njarðvík sigri, samt á undarlegan hátt, því við gerum ráð fyrir þremur útisigrum! Sem sagt, Njarðvik vinnur fyrsta leikinn, síðan jafnar KR með sigri í Njarðvík og loks vinnur Njarðvík spennuleik í DHL-höllinni á mánudaginn.
- Haukar – Tindastóll
Hér skiptir fyrsti leikurinn öllu máli. Ef Stólunum tekst að “stela” fyrsta leiknum, gerum við ráð fyrir 2-0 sigri þeirra, en ef Haukarnir standast álagið reiknum við með 2-1 sigri þeirra. Við þorum samt ekki að spá um fyrsta leikinn, en teljum að miklu máli skipti hvort Kiddi “Gun” og Cook mæti með hlaðnar byssur á svæðið!