Úrslitakeppni kvenna hefst á föstudag
Keflavíkurstúlkur fá lítið frí þessa dagana sökum þess að þær höfnuðu í 3. sæti deildarinnar eftir tap gegn Hamarsstúlkum. Þeirra fyrsti leikur í 8-liða úrslitum Iceland Express-deildarinnar verður háður í Toyota Höllinni á föstudaginn næstkomandi og eru það Snæfellsstúlkur sem mæta í heimsókn. Nú er það krafa til allra stuðningsmanna Keflavíkur í körfubolta að mæta í húsið og styðja við bakið á stelpunum. Leikurinn hefst klukkan 19:15. KOMA SVO!
Áfram Keflavík!