Fréttir

Körfubolti | 4. apríl 2003

Úrslitakeppni um helgina hjá 9. flokki kvenna, unglingaflokki kvenna (A og B), drengjaflokki, unglingaflokki karla og 1. flokki karla

Það eru ekki bara meistaraflokkar félagsins sem standa í ströngu um þessar mundir. Margir flokkar eiga fyrir höndum úrslitaviðureignir á næstu vikum og nú um helgina eru alls sex lið frá okkur í eldlínunni, þar af tvö í unglingaflokki kvenna, A og B lið. En B liðið er einmitt 9. flokkurinn og hafa þær stúlkur nóg fyrir stafni þessa dagana. Kíkjum á dagskrána:

  • 2. deild B (unglingaflokkur karla)
    Keflavík - KFÍ
    Keflavík, fös. 4. apríl kl.20.30

    Liðið sem sigrar kemst í undanúrslit
  • Drengjaflokkur
    Haukar – Keflavík
    Laugardalshöll, fös. 4. apríl kl. 21.45

    Liðið sem sigrar leikur til úrslita gegn UMFN eða ÍR á sunnudeginum
  • Unglingaflokkur kvenna
    Haukar - Keflavík A
    Laugardalshöll, lau. 5. apríl kl.15.00 

    UMFG - Keflavík B
    Laugardalshöll, lau. 5. apríl kl.17.00 

    Sigurvegarar úr þessum leikjum leika til úrslita á sunnudeginum
    Unglingaflokkur kvenna úr Keflavík er Bikarmeistari
  • 9. flokkur kvenna
    Keflavík leikur í undanúrslitum
    Laugardalshöll, lau. 5. apríl kl. 9.00 eða 10.30

    Úrslitaleikurinn er á sunnudaginn
    9. flokkur kvenna úr Keflavík er Bikarmeistari
  • 2. deild C (gamli 1. flokkurinn)
    Keflavík - Ármann/Þróttur
    Keflavík, sun. 6. apríl kl. 16

    Sigurvegarar leika gegn Breiðabliki eða Haukum

Heimasíðan vill hvetja Keflvíkinga til að veita þessum leikjum athygli og endilega gera sér ferð á leikina og styðja við bakið á okkar fólki. ÁFRAM KEFLAVÍK!!