Úrslitakeppnin framundan – spáð í spilin
Nú byrjar fjörið á Íslandsmótinu fyrir alvöru í næstu viku. Vonandi fær þá körfuboltinn sjálfur smá athygli í stað umfjöllunar um Kana og launaþak. Heimasíðan ætlar að skoða aðeins þær viðureignir sem framundan eru og spá í spilin:
Snæfell – Hamar: 2-0 eða 2-1
Deildarmeistararnir eru óneitanlega sigurstranglegri í þessari viðureign. Þeir hafa gott fimm manna lið, útlendingana þrjá og svo Sigurð Þorvaldsson og Hlyn Bæringsson. Þetta er firnasterkt lið eins og dæmin hafa sýnt og allir gera þeir að meðaltali yfir 10 stig á leik. Af bekknum koma Hafþór og Lýður og geta þeir átt góða daga, þótt ekki sé á vísan að róa. Spurning hvort skortur á breidd hái þeim þegar fram í sækir, þó þarf það ekki að vera, því hlutverkin í liðinu eru afar skýr. Varnarleikur hefur verið þeirra aðalsmerki, en flest liðin bæta varnir sínar í úrslitakeppni og því fær oft sóknarleikurinn aukið vægi í úrslitakeppni.
Hamar hefur í sjálfu sér ekki ósvipað lið, nema hvað leikmennirnir eru ekki jafn sterkir, tveir ágætir Kanar og einn aðeins veikari, og síðan eru þeir Lárus Jónsson og Marvin Valdimarsson iðnir við kolann. Svavar Pálsson á einnig góða spretti inn á milli. Hamarsmenn eru stemmningslið og geta unnið alla, a.m.k. á eigin heimavelli, en ekki mun það duga til að komast áfram.
Snæfell á eftir að kynnast alvörunni í undanúrslitunum, en við gerum þó ráð fyrir að þeir fari tiltölulega auðveldlega í gegnum Hamar, þótt Hamarsmenn gætu hugsanlega tekið heimaleikinn. En Snæfell mun a.m.k. vinna sína heimaleiki og komast áfram.
Grindavík – KR: 2-0
KR-ingar hafa leikið illa upp á síðkastið, þótt gera megi ráð fyrir þeim nokkuð sprækum í úrslitakeppnina, þar sem burðarásar liðsins eru að ná fullum styrk eftir meiðsli, t.d. þeir Murray, Baldur og Jesper. Síðan er nýr Kani kominn í liðið og ætti að styrkja það. KR er mjög vel mannað lið, en eins og oft á undanförnum árum þá virkar leikur liðsins stundum eins og að plan skorti. Ef þeir ná að laga til í taktíkinni og láta stóru mennina sína ekki standa allan leikinn fyrir utan 3ja stiga línuna, þá gætu þeir átt séns, en til þess þarf mikil barátta að vera til staðar.
Með því að taka Pál Axel og fleiri af launaskrá bjuggu Grindavíkingar til pláss undir launaþaki fyrir nýjan Kana sem kom til landsins á dögunum. Kanamál Grindjána í vetur hafa reyndar verið ansi skrautleg en kannski virkar þetta hjá þeim fyrir rest, hver veit? Allar þessar breytingar gera lið Grindjána afar sterkt fyrir úrslitakeppnina, a.m.k. á pappír. Darryl er svaka öflugur, Rogers er bráðum að verða jafn góður og Trammel, og nýi ökuþórinn, Anthony Jones, á að hafa verið einn sá besti í Svíþjóð, og ætti því að duga fyrir Ísland, (en hann er sjötti Kaninn sem kemur í plássið í vetur). Þessir fimm leikmenn, þrír góðir Kanar, besti Íslendingurinn í vetur, Páll Axel, og gamli refurinn Gummi Braga eru einfaldlega það góðir að þeir ættu að fara ansi langt, kannski alla leið.
Ef Grindvíkingarnir eru heilir og meiðast ekki þá vinna þeir 2-0. Ef hins vegar Páli Axeli fer að vanta pening, þá þurfa þeir að senda Jones heim á ný og þá verður viðureignin jöfn og spennandi.
Keflavík – Tindastóll: 2-1
Við höfum upplifað nokkuð miklar sveiflur á Keflavíkurliðinu í vetur. Heimavöllurinn hefur verið nánast óvinnandi vígi, eini ósigurinn s.l. 14 mánuði er gegn franska stórliðinu Dijon. Einnig voru útileikirnir afar góðir í Bikarkeppninni, sigrar gegn Haukum, Grindavík og Njarðvík. En útileikirnir í deildinni hafa verið afar slakir, hverju svo sem um er að kenna. Þeir Nick og Derrick hafa leikið vel og t.d. hefur Nick bætt leik sinn verulega eftir áramót. Fannar er að koma sterkur inn eftir meiðsli og mun leika stórt hlutverk í úrslitakeppninni. Fyrir utan þá þrjá eru margir góðir leikmenn, fyrstan skal þar nefna fyrirliðan Gunnar Einarsson, þó þátttaka hans í þessari viðureign verði að teljast hæpin sökum ítrekaðra meiðsla. En Keflavík hefur heilan her af prýðilegum leikmönnum, þá Hjört, Sverri Þór, Arnar Frey, Magga, Halldór og Jonna, auk Davíðs og Gunnars Stef. Gallinn hefur þó verið sá að þessir leikmenn hafa ekki verið stöðugir, heldur átt góða leiki og dottið niður inn á milli. Jafnvel má segja að breiddin hafi á stundum þvælst fyrir liðinu. Samt eru þarna leikmenn eins og Maggi og Sverrir sem sýnt hafa það að þeir geta nánast gert út um jafna leiki í lokin upp á eigin spýtur.
Og nú er komið að alvörunni og þá verða leikmenn vonandi allir mótiveraðir líkt og í Bikarkeppninni og Evrópukeppninni, en þar hafa verið okkar langbestu leikir í vetur. Reyndar hefur skarð Fals ekki verið auðfyllt, þrátt fyrir breiddina, því hann var stöðugasta skyttan í liðinu. Ekki er reiknað með því að Falur leiki meira með.
Tindastóll hefur svipað liðsmynstur og Snæfell og Hamar, þrjá Kana sem bera uppi liðið og ágæta leikmenn með. Nick Boyd og Clifton Cook eru aðalmennirnir, skora 22-23 stig á leik, og svo hefur David Sanders leikið ágætlega, en hann gerir um 17 stig að meðaltali. Þeir Íslendingar sem mest kveður að eru Kristinn Friðriksson sem þó hefur leikið lítið vegna meiðsla, Svavar Birgisson, Helgi Viggósson og Axel Kárason. Allir geta leikið vel og stundum er liðið feykisterkt, en getur dottið niður inn á milli.
Aðalatriðið fyrir Keflavík er að vinna fyrsta leikinn og best væri vitanleg að sigra 2-0. En Stólarnir eru sterkir á Króknum og við gerum ráð fyrir að heimavöllurinn haldi í öllum leikjunum og að Keflavík fari með sigur af hólmi 2-1.
Njarðvík – Haukar: 2-0
Njarðvík hefur, líkt og mörg önnur félög, verið upp og ofan í vetur. Þeir hafa kannski besta fimm manna lið landsins með Brenton, Brandon, Friðrik og Pál. Síðan hefur einn nýr bæst í hópinn, William Chavis. Breiddin er kannski ekki mjög mikil, því Egill Jónasson og Guðmundur Jónsson eru meiddir. En þeir hafa Halldór Karlsson, Ólaf Aron og Ragnar sem allir geta átt góðar innkomur. Ef liðið finnur taktinn undir stjórn nýja Kanans, þá verða Njarðvíkingar svakalega öflugir og koma sterklega til greina sem næstu Íslandsmeistarar.
Haukar sýndu góðan leik gegn Keflavík í síðustu umferðinni. Sævar Haraldsson er orðinn einn skemmtilegasti bakvörður landsins og svo er Kaninn, Mike Manciel, bæði fjölhæfur og sterkur. Whitney Robinson virðist ekki mikill bógur, en sýndi þó góða takta á dögunum. Þessir þrír eru í aðalhlutverki, en síðan koma nokkuð margir ágætir leikmenn sem verða að eiga góða leiki, ætli Haukarnir sér að standa í Njarðvík. Það hefur nefnilega oft loðað við Hauka að ná sér ekki á strik í úrslitakeppninni, en þeir hafa örugglega hug á að breyta því núna.
Njarðvík vinnur fyrsta leikinn frekar stórt, en leikur númer tvö í Hafnarfirði gæti verið tvísýnn. Spáum þó nokkuð öruggum 2-0 sigri fyrir Njarðvík.
. . . . ef þessi spá rætist þá munu mætast í undanúrslitum Snæfell og Njarðvík annars vegar og Grindavík og Keflavík hins vegar. Sjáum til.