Úrslitaleikur á morgun í Sláturhúsinu
Jæja góðir hálsar, þá er komið að fyrsta (en vonandi ekki síðasta) úrslitaleik Keflvíkinga í yfirstandandi úrslitakeppni Íslandsmótsins. Á morgun er nefnilega oddaleikur í einvígi Suðurnesjafélaganna Keflavík og Grindavík. Fyrsti leikurinn var eign okkar manna, en í öðrum leik sneru Grindjánar taflinu við, með Helga Jónas endurnærðan í broddi fylkingar, og jöfnuðu metin. Nú er málið afar einfalt, liðið sem tapar er úr leik, en sigurvegarinn leikur í undanúrslitum. Ef Keflavík kemst áfram verða andstæðingarnir ÍR eða KR (ef þeir vinna Snæfell), en ef Grindavík kemst áfram verða andstæðingar þeirra Snæfell (ef þeir vinna KR) eða sigurvegarinn úr einvígi Fjölnis og Skallagríms.
Það er gömul saga og ný að Keflvíkingar leiki oddaleik í 8-liða úrslitum, sérstaklega á undanförnum árum. Skoðum 8-liða úrslit undanfarinna 10 ára:
- 8-liða úrslit 2004: Keflavík vann Tindastól 98-96 í oddaleik eftir tip-in frá Fannari og varð í kjölfarið Íslandsmeistari
- 8-liða úrslit 2003: Keflavík vann ÍR 115-84 í oddaleik og vann alla leiki eftir það og varð síðan Íslandsmeistari
- 8-liða úrslit 2002: Keflavík vann Hauka 94-84 í oddaleik og fór í úrslitaviðureign gegn Njarðvík sem tapaðist
- 8-liða úrslit 2001: Keflavík vann Hamar 2-0 og datt svo út í undanúrslitum gegn Tindastóli
- 8-liða úrslit 2000: Keflavík tapaði gegn Grindavík 70-112 í oddaleik og var þar með úr leik
- 8-liða úrslit 1999: Keflavík vann Hauka 2-0 og varð síðan Íslandsmeistari með sigri á Njarðvík
- 8-liða úrslit 1998: Keflavík vann Hauka 2-0 en datt út í undanúrslitum gegn Njarðvík
- 8-liða úrslit 1997: Keflavík vann ÍR 2-0 og varð Íslandsmeistari eftir viðureign við Grindavík
- 8-liða úrslit 1996: Keflavík vann KR 83-77 í oddaleik og tapaði seinna í úrslitum gegn Grindavík
- 8-liða úrslit 1995: Keflavík vann Þór 2-0 en tapaði síðan í undanúrslitum gegn Grindavík
Á síðustu 10 árum hefur Keflavík fimm sinnum þurft að leika oddaleik í 8-liða úrslitum og fjórum sinnum hefur Keflavík haft sigur. Síðustu þrjú árin hefur Kef alltaf leikið oddaleik í 8-liða og ávallt komist í úrslit í kjölfarið og tvö síðustu árin orðið Íslandsmeistari. Aðeins einu sinni hefur það gerst að Kef hefur ekki komist í gegnum 8-liða úrslitin, árið 2000.
Leikurinn á morgun verður gríðarlega spennandi, á því leikur enginn vafi. Allir vita hvað býr í Grindavíkurliðinu og gefur áttunda sæti þeirra í deildinni ekki rétta mynd af getu leikmanna, því þeir hafa einhvern veginn ekki náð að smella saman í vetur eins og við var búist. Leikmenn eins og Boschee, Lewis, Helgi Jónas og Páll Axel eru allir miklir skorarar, einn á einn, og geta gert mikinn usla. En Keflavík hefur ekki tapað leik í úrslitakeppni í hartnær þrjú ár og hefur þar að auki leikið liða best og jafnast í vetur, þannig að hefðin er með okkar mönnum, ef svo má segja. Stemmingin hefur mikið að segja og víst er að leikmenn okkar kunna að leika stórleiki, það hafa þeir sýnt aftur og aftur á liðnum árum og flestir slíkir hafa farið vel fyrir Keflavík. En hver verða lykilatriðin á morgun?
Ef taka má mið af síðasta leik er ljóst að einbeitingin verður að vera til staðar, menn verða að nýta opnu færin, því þau munu bjóðast í töluverðu magni. Grindavík er ekki mikið varnarlið og vörn þeirra undir körfunum er ekki sterk. Ef Keflavík nær að halda góðum hraða í leiknum og keyra fram völlinn munu færin bjóðast. Terrel hefur ekkert í Glover að gera og mikilvægt verður að láta Gloverinn fá boltann þegar hann á þess kost að fara að körfunni. Eins verða Nick, Maggi, Arnar og Sverrir að vera duglegir að keyra upp að körfunni og splundra vörn andstæðinganna til að skapa opin færi. Reyndar hafa Grindvíkingar leikið töluvert af svæðisvörn, en lykillinn gegn henni er að menn verði ekki staðir, heldur haldi keyrslunni og séu ófeimnir við að taka opnu skotin.
Varnarlega er mikilvægt að halda þéttri vörn á skytturnar öllum stundum. Glover á að ráða við Terrel og þótt hann skori af og til munu þeir ekki vinna leikinn á honum. Þeirra séns til að vinna er að 3ja stiga skytturnar bombi í gríð og erg og að Darryl fái að leika lausum hala. Það er ekki auðvelt að eiga við þessa leikmenn, en Keflavíkurvörnin er sú sterkasta á landinu og ef hún nær sér á strik á morgun munu gestirnir þurfa að hafa töluvert fyrir sínum körfum.
En hvað sem öllum vangaveltum líður þá eru það leikmennirnir á morgun sem hafa allt á sínu valdi. Það verður mikið stuð í Sláturhúsinu og örugglega verður enginn svikinn af því að leggja leið sína þangað og styðja við bakið á Íslandsmeisturunum, því nú er komið að úrslitastundu.....ÁFRAM KEFLAVÍK!