Fréttir

Körfubolti | 15. mars 2004

Úrslitaleikur gegn Tindastóli

Jæja, kæru hálsar, nú er komið að mikilvægasta leiknum í Sláturhúsinu í langan tíma. Eftir sigur og tap í fyrstu tveimur leikjunum er komið að Oddaleik í einvígi Keflavíkur og Tindastóls. Liðið sem vinnur fer í undanúrslit, liðið sem tapar fer í sumarfrí . . . . .allt of snemma! En svona er köfuboltinn, úrslitakeppnin er stórskemmtileg keppni þar sem hitinn og fjörið magnast hratt og allir leikir eru eins og bikarleikir. Og oddaleikirnir eru allra bestir, því þar er allt í húfi.

Tindastólsmenn mæta til leiks með sterkt lið sem hefur verið að eflast að undanförnu. Kanarnir eru góðir og á morgun mun Nick Boyd líklega leika með í fyrsta sinn í þessu einvígi. Hann hefur verið stigahæsti maður liðsins til þessa og munar því verulega um hann. Liðið leikur oft skemmtilega og eru þeir Cook og Sanders fjölhæfir og sérlega sprækir leikmenn, þótt Sanders sé greinilega mikill skapmaður. Svavar átti stórleik á Króknum um daginn og fékk of oft að komast í frítt skotfæri, þetta er eitthvað sem við verðum að laga. Vörnin verður að vera vatnsheld, hún má ekki hleypa þeim inn að körfunni, því þar skaða þeir okkur mest. Vissulega geta þeir hitt að utan, ekki síst Cook og Boyd, en mikilvægast er að loka vörninni. Vel gæti verið að skynsamlegt væri að pressa þá allan völlinn og reyna að koma þeim þannig í vandræði, því enginn kann vel við pressuvörn í Keflavík.

Okkar menn eru hungraðir í sigur eftir tap í síðasta leik. Magnús hefur leikið manna best í síðustu tveimur leikjum og mun eflaust mæta með miðið stillt rétt í leikinn. Það sama gildir um aðra leikmenn, því allir skilja mikilvægi leiksins. Við ættum að hafa yfirburði undir körfunum, ekki síst með þá Derrick, Fannar og Jonna og gaman væri að sjá liðið nýta sér þá yfirburði. Skytturnar hafa verið nokkuð misjafnar í vetur, en ef Maggi, Gunni & Co. verða klárir í slaginn, þá gerir maður ráð fyrir að sjá nokkrar bombur á morgun.

Stuðningsmenn beggja liða eru heitir og í hönd fer frábær tími. Háspenna og lífshætta í vændum. Allt er lagt undir í þessum leik.

ÁFRAM KEFLAVÍK!!!