Úrslitaleikur Hópbílabikar kvenna á laugardag
Á laugardaginn er komið að úrslitaleik hjá stelpunum í Hópbílabikar þegar þær mæta ÍS í DHL höll í Vesturbænum. Þar hafa þær titil að verja eins og reyndar alla aðra titla sem í boði eru. Keflavík komst í úrslit með því að leggja fyrst Breiðblik að velli í tveimur leikjum 143-54 og svo 100-49. Samtals 130 stig! Keflavík vann svo Grindavík furðu auðveldlega 83-49 í undanúrslitum. „Við erum að spila frábæra vörn sem skilar okkur auðveldum körfum. Við erum sífellt að reyna að bæta okkar leik og verðum tilbúin gegn ÍS um næstu helgi.“ Sagði Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur í leikslok.
Keflavík er efst deildinni með 12 stig eftir 6 leiki en Ís er í 2 sæti með 10 stig eftir 7 leiki. Liðin hafa mæst einu sinni á tímabilinu og vann Keflavík þann leik 64 - 79. Leikurinn er á laugardag kl 16.00 í DHL Höllinni í Reykjavík eins og áður sagði. Áfram Keflavík.
Mynd af Keflavík í æfingaferð í Danmörku í haust