Úrslitaleikur Lengjubikarsins á morgun!
Keflavíkurstúlkur gera sér ferð í Laugardalshöll á morgun og mæta þar KR-stúlkum í úrslitum Lengjubikarsins. Keflavíkurstúlkur eru að spila í níunda sinn til úrslita í Fyrirtækjabikarnum, en KR -túlkur í sjötta sinn. Það má svo sannarlega búast við hörkuleik, þar sem bæði lið hafa mjög sterka innviði.
Leikurinn hefst klukkan 13:00 og eru allir sannir Keflvíkingar hvattir til að láta sjá sig og styðja stelpurnar til sigurs! Hægt er að nálgast miða á midi.is
Áfram Keflavík!