Úrslitin hefjast á morgun!
Á morgun verður fyrsti leikur í úrslitarimmu Iceland Express deildarinnar háður. Snæfellingar mæta til Keflavíkur og eru bæði lið gríðarlega vel stillt fyrir átökin. Ekkert annað en sigur kemur til greina hjá okkar mönnum, en það er einnig mikilvægt að þeir finni fyrir miklum stuðning í stúkunni frá áhangendum. Nú verða síðustu metrarnir teknir í deildinni og við skulum öskra okkar menn til sigurs! Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður opnað fyrir miðasölu klukkan 18:00.
Við viljum koma því á framfæri að breytt miðaverð verður í úrslitarimmunni og er miðaverð á heimaleiki Keflavíkur eftirfarandi:
Fullorðnir - 1500kr
12-16 ára - 1000kr
0-11 ára - FRÍTT