Fréttir

Körfubolti | 23. mars 2004

Úrslitin hefjast hjá stúlkunum þegar ÍS kemur í heimsókn

Núverandi Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur leika gegn ÍS í úrslitum Íslandsmótsins í fyrsta skiptið. Fyrsti leikurinn er á morgun, miðvikudag, en leikið verður sem hér segir

  • miðvikud. 24. mars í Keflavík kl. 19.15
  • laugard. 27. mars í Kennaraháskólanum kl. 15.00
  • mánud. 29. mars í Keflavík kl. 19.15
  • föstud. 2. apríl í Kennaraháskólanum kl. 19.15
  • mánud. 5. apríl í Keflavík kl. 19.15

Leikir verður uns annað hvort liðið hefur unnið þrjá leiki.

Keflavík hefur alls 10 sinnum orðið Íslandsmeistari kvenna, fyrst 1988, en ÍS þrisvar, fyrst 1978 og síðast 1991. Frá því að úrslitakeppnin var tekin upp árið 1993 hefur Keflavík oftast allra félaga orðið meistari, alls 6 sinnum, en næst koma KR-ingar með 3 titla. ÍS hefur ekki unnið eftir upphaf úrslitakeppninnar en einu sinni leikið til úrslita, árið 2002, en það var ansi söguleg viðureign, þar sem ÍS komst í 2-0 en tapaði síðan þremur leikjum í röð gegn KR. Keflavík hefur 9 sinnum leikið til úrslita og 6 sinnum sigrað, síðast 3-0 í fyrra gegn KR.

Keflavíkurliðið hefur unnið alla titla vetrarins og á nú bara þann stóra eftir. Liðið lék lengstum vel framan af vetri en hikstaði í Bikarúrslitum en tókst á eftirminnilegan hátt að landa sigrinum þar gegn KR. Deildin var okkar frá upphafi, en töluvert ströggl var gegn Grindavík í undanúrslitunum. Leikirnir gegn ÍS hafa verið sjö í vetur, sem hér segir:

  • Deildarkeppnin: Kef - ÍS: 2-2 (Kef deildarmeistari)
  • Meistarar meistaranna, úrslit: Kef - IS: 1-0 (Kef meistari meistaranna)
  • Hópbílabikarinn, undanúrslit: Kef - ÍS: 1-0 (Kef Hópbílameistari)
  • Bikarkeppnin, undanúrslit: Kef - ÍS: 1-0 (Kef Bikarmeistari)
  • Alls Kef 5 - ÍS 2

Styrkur ÍS er tvímælalaust góðir skorarar í bakvarðastöðum, þær Casie Lowman og Alda Leif Jónsdóttir, en þær bera uppi liðið. Lovísa getur verið skeinuhætt þegar hún fær opin skot og er góður frákastari, líkt og Svandís sem er sterk. Stella á það til að hitta ágætlega úr 3ja stiga skotum og svo er Hafdís alltaf baráttuglöð og dugleg.

Hjá okkar stúlkum er valinn (kven)maður í hverju rúmi og getur liðið leikið afar vel ef sá gállinn er á þeim. Varnarlega er liðið yfirleitt sterkt, en sóknarleikurinn hefur verið stirður ef hraðinn dettur niður. En hraðinn vinnur með okkar liði og við vonumst eftir að sjá hraðan og skemmtilegan bolta í þessari úrslitakeppni.

ÁFRAM KEFLAVÍK!!!