Fréttir

Körfubolti | 9. febrúar 2004

Útileikur gegn Breiðabliki á morgun, þriðjudag

Eftir bikarfjörið um helgina blasir hversdagsleikinn við á morgun. Vegna Evrópukeppninnar var leik gegn Breiðabliki frestað fyrr í vetur. Sá leikur verður á morgun, þriðjudag, í Smáranum kl. 19.15. Sigur í þessum leik er mikilvægur fyrir okkur í toppbaráttunni í Intersport deildinni, þar sem ýmislegt er enn mögulegt. Okkar menn verða að ná upp einbeitingunni fyrir þennan leik, þar sem Breiðablik er í bullandi botnbaráttu og munu þeir eflaust berjast vel fyrir sínu. Okkar menn hafa verið slakir í mörgum útileikjum í vetur og nú er rétti tíminn til að huga að breytingu þar á.