Útsending frá Evrópuleiknum
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni mun Keflavík hefja leik í Evrópukeppninni í Finnlandi á miðvikudaginn kl. 15:00 að íslenskum tíma. Munum við hér á heimasíðunni setja inn upplýsingar um stöðuna eins fljótt og auðið er.
Hægt verður að fylgjast með gangi leiksins undir liðnum Evrópukeppni hér til vinstri.