Fréttir

Körfubolti | 29. desember 2003

ÚTTEKT á leikmönnum Keflavíkur fyrir jól (endurbætt útgáfa)

Úttekt á leikmönnum Keflavíkurliðsins - Derrick og Gunnar voru bestir í fyrri hlutanum

 

Heimasíðan er sammála netverjum sem sögðu í net-könnun að Derrick hefði verið besti maður liðsins til þessa og að Gunnar E hefði verið bestur heimamanna. Heimasíðan gerði smá úttekt á leikmönnum og þjálfurum og liðinu í heild og fer hún hér. Leitað var til sérfræðinga sem fylgst hafa með leikjum liðsins í vetur og Heimasíðan tók saman umsagnir og kemur þeim hér með á framfæri.

 

Fyrir þá sem vilja skoða heildar-tölfræðina, þá er samantektin hér.

 

Maður fyrri hlutans (1) – Derrick

  • Hann var fenginn til liðsins til að bæta hæðina og auka styrkinn undir körfunum þar sem Keflavík eru veikastir fyrir.
  • Derrick hefur gert gott betur en það því hann er bæði aðal skorari og frákastari liðsins með tæp 23 stig og tæp 10 fráköst.
  • Öll hans frammistaða og hegðun innan vallar sem utan er til fyrirmyndar og hefur farið fram úr björtustu vonum.
  • Hann er góð skytta af 2ja-4ra metra færi, hefur 60% skotnýtingu, mikill baráttuhundur og afskaplega iðinn á vellinum, fljótur að hlaupa og duglegur.
  • Hans helsti galli er að hann fær stundum á sig klaufalegar villur. Það lærist vonandi.
  • Derrick er ekki tæknitröll sem getur alla mögulega hluti, en hann þekkir sín takmörk og heldur sig innan þeirra. Það mættu aðrir læra af honum.
  • Sem sagt, topp einkunn fyrir Derrick.
  • Tölfræði Derricks

 

Maður fyrri hlutans (2) – Gunnar E

  • Gunni hefur átt góð tímabil undanfarin ár og tók í haust við fyrirliðabandinu af Guðjóni Skúlasyni.
  • Gunni er fjölhæfur leikmaður sem gerir ekki mikið af mistökum, því hann leikur af skynsemi.
  • Hann er öflugur skorari sem getur póstað upp, skotið (43% í 3ja) og drævað.
  • Eins getur hann leikið vörn gegn hávöxnum jafnt sem lágvöxnum andstæðingum.
  • Helsti galli Gunna er sá að stundum á hann það til að hverfa í sóknarleiknum og hættir að líta á körfuna. Það hefur þó minnkað í seinni tíð.
  • Hann hefur staðið sig afar vel í Evrópukeppninni og haft í fullu tré við stóra trukka frá meginlandinu.
  • Gunni nýtir færin sín vel og leikur ávallt góða vörn, mætti þó bæta vítahittnina (aðeins 65%).
  • Meðalskor hans í haust er um 13 stig í leik.
  • Mjög gott tímabil hjá Gunna “so far” og mikið mun mæða á honum í Euro, Bikar og Úrslitum eftir jól.

 

 

Aðrir leikmenn (í stafrófsröð):

 

Arnar Freyr

  • Arnar hefur oft sett svip á leiki haustsins með innkomu sinni, því hann er fljótur og leikinn og getur orsakað usla hjá andstæðingum.
  • Hann meiddist illa í nóvember en kom sterkur inn í Portúgal í lok desember, skoraði 24 stig í tveimur erfiðum útileikjum.
  • Arnar þarf að læra betur að stjórna sjálfum sér og leiknum, því stundum ber kappið hann ofurliði.
  • Hann hefur ekki hitt sérlega vel í vetur (45% í 2ja og 19% í 3ja), en hins vegar leikið góða vörn og verið duglegur í stoðsendingum (yfir 3 á leik) og fráköstum.
  • Ef Arnar hlustar á þjálfara sína og lætur temja sig örlítið betur, þá munu hæfileikar hans fá að njóta sín enn betur, því hann hefur nóg af þeim, bæði í vörn og sókn.
  • Ef Arnar heldur vel á spilunum gæti hann fljótlega orðið “alvöru player”.

 

Davíð

  • Davíð hefur leikið að meðaltali um 15 mínútur í 19 leikjum og stundum átt góða spretti.
  • Davíð hefur fullt af hæfileikum, sérstaklega sóknarlega, hann hefur góða boltatækni, er prýðileg skytta (42% í 3ja) og kann að brjótast upp að körfunni.
  • Stundum glittir í þessa miklu hæfileika og er þá gaman að fylgjast með Davíð, en stundum í haust hefur hann komið inná og lítið hefur borið á honum.
  • Stundum hefur hann ekki leikið á fullu, að því er virðist, og þannig ekki náð að sýna hvað í honum býr.
  • Davíð þarf að vera 100% klár þegar hann er látinn inná og reiðubúinn að gefa allt sitt í leikinn.
  • Þannig nær hann að komast upp á næsta þrep, ef svo má segja, frá því að vera efnilegur yfir í að vera virkilega góður.

 

 

Falur

  • Falur hefur verið jafnbesti maður liðsins í vetur, ásamt Gunnari E og Derrick.
  • Hittni hans hefur verið mjög góð og stigaskorið jafnt og þétt, það hefur mátt reiða sig á hann.
  • Reyndar hefur Falur misst svolítið af hraða sínum sökum meiðsla og getur þ.a.l. ekki keyrt eins grimmilega upp að körfunni og áður fyrr.
  • Falur hefur stjórnað leikjum vel og er ennþá okkar besti leikstjórnandi.
  • Vegna þrálátra hnémeiðsla er óvíst um þátttöku Fals eftir jól. Við vonum það besta.

 


Gunnar S

  • Gunnar er einn uppáhalds-innáskiptingarmaður áhorfenda, og ekki að ósekju, þar sem hann kemur oft inná með mikla baráttu og reiðubúinn til að taka þátt í leiknum
  • Skemmst er að minnast frammistöðu hans gegn Grindavík, þar sem hann var besti maður Keflavíkurliðsins.
  • Gunnar er fyrst og fremst skytta sem þarf að fá sín skot.
  • Hann getur verið eins konar “super-sub” og eitraður sem slíkur.
  • Hann verður þó, líkt og Davíð, að passa sig á því að vera ávallt 100% klár þegar kallið kemur, en stundum hefur hann komið inná með “hangandi haus” og þá nær hann sér ekki á strik.
  • Tölfræði Gunnars S.

 


Halldór

  • Halldór leikur að jafnaði minnst allra í liðinu, aðeins um 11 mínútur í leik.
  • Samt dylst engum hugur um það að Halldór er framtíðarleikmaður Keflavíkur, bæði hávaxinn og hæfileikaríkur.
  • Hann hefur þróað með sér gott skot og getur orðið öflugur sóknarmaður, hefur t.d. hitt úr 50% af 3ja stiga skotum sínum í vetur.
  • Hann er þó enn sem komið er ekki nógu sterkur líkamlega og þarf verulega að huga að líkamsrækt og hollu og góðu mataræði.
  • Halldór mun eflaust fá fleiri mínútur eftir jól, því hann hefur nánast alltaf nýtt þær vel, þó stundum hafi hann lent í “erfiðum” mínútum í lok leikja.
  • En hans leið inn í framtíðina liggur í gegnum stífa líkamsþjálfun, því hæfileikarnir eru til staðar, það vantar bara aðeins upp á styrkinn og grimmdina.

 


Hjörtur

  • Hjörtur lenti í slæmum meiðslum í úrslitaleik Hópbílabikarsins og viðbeinsbrotnaði.
  • Fram að þeim tíma hafði hann haft frekar hægt um sig og í raun leikið undir eigin getu, sem er all veruleg.
  • Þó var Hjörtur farinn að finna sig, rétt fyrir meiðslin, og því óheppinn með tímasetninguna.
  • Hans var síðan saknað þegar Falur meiddist í lok haustsins.
  • Leikur Hjartar eftir jól er spurningarmerki, þar sem hann er svakalega flinkur körfuboltamaður, hefur betri bolta- og skottækni en flestir aðrir og býr yfir góðum sendingum og flottum leikskilningi.
  • Samt er eins og að stundum leiki Hjörtu heilu leikina án þess að muna hve góður hann getur verið.
  • Nú vonum við bara að hann nái sér af meiðslunum og komi svo af krafti inn í liðið á ný.
  • Ef Hjörtur leikur af hámarksgetu, þá standast honum fáir snúning.

 


Jonni

  • Jonni er grannur og hávaxinn, líkt og Halldór, en er þó miklu grimmari leikmaður.
  • Jonni hefur oft leikið mjög vel í haust og ekki síst í Evrópuleikjum.
  • Hann er með betri varnarmönnum landsins og leikur ávallt af fullum krafti.
  • Galli Jonna er þó sá að stundum er hann ekki með hugann við að skora körfur, vandar sig ekki nógu mikið eða bara horfir ekki á körfuna.
  • Hann hefur nefnilega sýnt, t.d. gegn Ovarense, að hann getur vel skorað gegn sterkum varnarmönnum.
  • Eins er Jonni stundum klaufskur í villunum og gæti auðveldlega fækkað þeim án þess að draga úr grimmdinni og hörkunni.
  • Jonni hefur verið í góðum gír í haust, en getur enn bætt sig, sérstaklega sem sóknarmaður.
  • Heimasíðan vonast eftir því að meðalskor hans hækki úr þessum 7-8 stigum upp í svona 12-13 stig.

 


Magnús

  • Maggi er hæfileikaríkasti körfuboltamaðurinn í liðinu.
  • Á góðum degi getur Maggi nánast allt, skotið, drævað, póstað upp og skorað úr ótrúlegum færum á lykilstundum.
  • Hann sýndi sínar bestu hliðar í fyrstu leikjum Evrópukeppninnar en dalaði síðan þegar á leið haustið.
  • Hann átti lykilkörfur sem tryggðu sigur, bæði gegn Madeira og Toulon.
  • Galli Magnúsar er sá að stundum nær hann sér ekki á strik og nánast hverfur.
  • Eins getur varnarleikur hans verið afar slakur, þó ekki ef hann spilar af hörku.
  • Margir vilja meina að Magnús sé of þungur og þurfi að létta sig til að komast í sitt besta form. Kannski eitthvað sé til í því.
  • Heimasíðan var mjög ánægð með Magga fyrri part haustsins, en fannst hann valda vonbrigðum undir það síðasta, kannski einhver þreyta.
  • Vonandi kemur hann grimmur til leiks eftir jól, því hann er eitt öflugasta vopnið í íslenskum körfubolta og ætti í raun að geta skorað 18-20 stig að meðaltali í leik.

 


Nick

  • Nick Bradford hefur átt alls konar leiki í haust.
  • Hann hefur stundum verið arfaslakur, t.d. í útleikjum gegn Njarðvík og Grindavík, stundum verið “ok”, og stundum verið frábær og dregið vagninn, líkt og í flestum leikjum Evrópukeppninnar, ekki síst þeim síðasta þar sem hann skoraði 38 stig og fór gersamlega á kostum.
  • Nick er að mörgu leyti “öðruvísi” leikmaður en þeir Kanar sem hingað hafa komið. Hann er ekki fyrst og fremst skorari, heldur leikmaður sem á að gera félaga sína betri, sérstaklega með góðri vörn og góðum leikskilningi.
  • Stundum hefur hann “horfið” og valdið vonbrigðum.
  • En hann hefur þó fallið betur inn eftir því sem á leiktíðina hefur liðið og við vonum að framhald verði þar á. Ljóst er að hann er hæfileikaríkur leikmaður sem þrífst á góðri liðsheild.
  • Hinir leikmennirnir verða að átta sig á því að Nick er ekki skorari af guðs náð og því verða Maggi, Gunni og Jonni að leika stærri hlutverk í stigaskoruninni en t.d. í fyrra þegar Damon og Ed sáu að miklu leyti um þá hlið mála . . .

 


Sverrir Þór

  • Barátta Sverris er landskunn og leikur hann ávallt á 100% hraða.
  • Hann er einn þeirra fáu leikmanna sem geta komið inn á völlinn og hreinlega snúið gangi leiks, fyrst og fremst með geislandi baráttu sinni og geggjuðum varnarleik.
  • Dæmi um þetta eru úrslitaleikurinn í Reykjanesmótinu, þar sem Sverrir lék síðustu 5 mínúturnar og vann leikinn og heimaleikurinn í Evrópukeppninni gegn Madeira þar sem allur leikur Keflavíkur breyttist við innkomu Sverris.
  • Þrátt fyrir frábærar innkomur hefur Sverrir ekki náð að sýna sitt besta “daginn út og inn”, ef svo má segja.
  • Sverrir má auka hraðann með boltann upp völlinn þegar hann er leikstjórnandi og eins má hann stjórna liðinu af meiri röggsemi þegar hann leikur þá stöðu.
  • Annars er Sverrir sömu kostum gædur og Derrick, hann berst ávallt og heldur sig innan eigin geturamma.
  • Heimasíðan telur Sverri hafa leikið nokkuð vel, en samt eiga nokkuð inni og telur að töluvert meira eigi eftir að sjást til hans eftir jól.

 

 

Sævar

  • Sævar hefur verið “þrettándi” maðurinn í liðinu og hefur tekið þátt í sjö leikjum fyrir jól, mest í Hópbílakeppninni, en einnig í Bikar og deild.
  • Sævar er góð skytta og er ekkert upp á hann að klaga í þeim leikjum sem hann hefur tekið þátt í.
  • Hann má hins vegar herða varnarleik sinn og vera duglegri við að hreyfa fæturna í vörninni, það sást t.d. í leikjum gegn Þór Þorlákshöfn.
  • Annars er erfitt að vera í hlutverki eins og Sævar, hann verður bara að vera duglegur að æfa, vera hluti af liðsheildinni, bíða eftir kallinu, og standa sig þegar kallið kemur.

 

 

Guðjón og Falur – þjálfararnir

 

Þjálfarar liðsins eru vitaskuld metnir eftir gengi liðsins. Og þegar gengið er skoðað má segja að það hafi verið gott, en þó misjafnt. Staðan í deildinni er svipuð og ætla hefði mátt miðað við álagið, 8 sigrar og 3 töp í 2.-4. sæti. Hópbílakeppnin var góð þar til um 5 mín voru eftir, en þá hrundi liðið í úrslitaleik gegn Njarðvík. Það var afar slakt. Sigur í Meistarakeppninni var goður. Árangurinn í Evrópukeppninni hefur verið frábær, ósigraðir á heimavelli og aðeins hársbreidd frá sigri í riðlinum. Enginn hefði getað ímyndað sér að við gætum unnið þrjú atvinnumannalið á heimavelli. Enda hefur verið tekið eftir þessu á landsmælikvarða og þátttaka okkar hefur haldið merki körfuboltans á lofti á Íslandi. Það voru hins vegar vonbrigði haustsins að ná ekki útisigri gegn Madeira í síðasta leiknum. Af þeim sökum verður framhaldið erfiðara. Evrópukeppnin hefur boðið upp á lang skemmtilegustu leikina hingað til og hefur stemmingin verið góð.

 

Þjálfararnir hafa dreift leikjum og mínútum ágætlega milli manna og t.d. hafa Gunnar E og Falur fengið nauðsynlega hvíld milli stórleikja. Fókusinn hefur augsjáanlega verið á Evrópukeppnina og stundum hafa menn virtst þreyttir í deildinni, sérstaklega í útileiknum gegn Grindavík þar sem ekki stóð steinn yfir steini í okkar liði, algert andleysi sem kom á óvart miðað við að um toppslag var að ræða. Kannski andlega þreytan hafi þar sagt til sín, því flestir voru með hugann við næsta Evrópuleik og því vantaði alla einbeitingu.

 

Áhorfendur í körfubolta hafa alltaf skoðun á innáskiptingum og er það ekkert öðruvísi hjá Guðjóni heldur en Sigurði undan farin ár eða öllum öðrum þjálfurum. Heimasíðan telur að heilt yfir hafi Guðjón staðið sig nokkuð vel í liðsvali og innáskiptingum, einna helst telur Heimasíðan þó að Sverrir Þór og Halldór hafi mátt sitja full mikið á bekknum. En það er erfitt að skipta inná þegar svona margir frambærilegir leikmenn eru til staðar. Leikskipulagið hefur verið prýðilegt, sérstaklega í Evrópukeppni, en stundum hefur hraðan vantað og pressuvarnir í íslensku keppnunum.

 

Guðjón og Falur fá sem sagt góða heildareinkunn sem þjálfarar fyrir fyrri hlutann, liðið virkar í góðu formi og hefur verið að eflast. Heimasíðan veit líka vel að þjálfararnir eru að stíga sín fyrstu skref á þessari braut og munu bara styrkjast eftir því sem á líður.