Fréttir

Körfubolti | 23. desember 2003

Úttekt á liðum og leikmönnum væntanleg

Nú er leiktíðin hálfnuð og gaman að líta aðeins um öxl og skoða gang mála. Hvernig hefur liðunum okkar vegnað? Hafa þau staðist væningar? Hvaða leikmenn hafa staðið sig best? Hefur eitthvað valdið vonbrigðum? Hefur eitthvað komið á óvart?

Vefstjóri er að vinna að smá samantekt um þessi mál, bæði fyrir mfl. karla og kvenna og mun hún birtast von bráðar, líklegast milli jóla og nýárs.