Fréttir

Körfubolti | 8. desember 2003

Vængbrotið lið Keflavíkur tapaði gegn ÍS í kvöld

Það vantaði töluvert í kvennalið Keflavíkur þegar haldið var í íþróttahús Kennaraháskólans í kvöld í toppslag deildarinnar gegn ÍS. Erla Þorsteinsdóttir er með lungnabólgu, Birna Valgarðsdóttir var líka veik og Kristín Blöndal einnig fjarverandi. Þessar þrjár hafa að meðaltali gert um 45 stig í leik og munar um minna, þrátt fyrir að breidd liðsins sé ágæt og ungu stúlkurnar efnilegar.

Fyrri hálfleikur var jafn framan af en á síðustu mínútunum skoraði Alda Leif 10 stig í röð, þar af 3 þrista og munurinn í hálfleik var 11 stig. Byrjun seinni hálfleiks var slök hjá Keflavík og munurinn jókst og fór upp í 22 stig þegar mest var. Þá datt stúlkunum í hug að leika smá vörn og í kjölfarið minnkaði munurinn, alveg niður í 7 stig, 61-54, en það var of seint í rassinn gripið og ÍS vann 12 stiga sigur, 68-56.

Keflavíkurvörnin var hriplek mest allan tímann, því Stúdínur fengu endalaust næði til að skjóta 3ja stiga skotum sem þær nýttu vel, sérstaklega Alda Leif og Stella. Alls skoraði ÍS 13 þrista sem verður að teljast nokkuð mikið. Fátt var um fína drætti hjá vængbrotnu Keflavíkurliði, einna helst vakti Bryndís Guðmundsdóttir athygli fyrir góðan leik, en þar er mikið efni á ferð. Hún gerði 13 stig. Stigahæst var Anna María Sveinsdóttir með 18 stig, en hún fór í gang í seinni hálfleik, þó það hafi ekki dugað til sigurs í þetta skiptið.

Jæja stúlkur, þetta var slæmt tap, en skiljanlega veikist liðið þegar þrjár stigahæstu stelpurnar vantar. En samt hefði liðið getað lagt ÍS ef leikinn hefði verið varnarleikur af krafti frá upphafi. En þetta er ekki stórmál, við vitum að Keflavík er mun betra lið og við eigum eftir að fá tækifæri til að sýna það með fullskipað lið bráðlega.