Valsmótið fer fram 25 til 28 ágúst
Hraðmót Vals hefst fimmtudaginn 25 águst og stendur til sunnudags 28 ágúst. Mótið er árlegur viðburður, en þar munu þau 12 lið sem spila í Intersportdeildinni í vetur ásamt Val og Breiðablik mætast í 2 riðlum. Keflavík er í A riðli ásamt Njarðvík, Þór, Skallgrím, ÍR og Val.
Falur Harðar sér um æfingar fyrir meistaraflokk þessa dagana, enda Siggi með landsliðið í æfingaferðum. Næsta ferð er til Kína þar sem þeir mætta Yao Ming leikmanni Houston Rocets og félögum í Kínverska landsliðinu. Með Sigga í för eru líka þeir Maggi, Gunni, Jonni og Arnar Freyr. Leikirnir fara fram 28 og 30 ágúst
Hér er leikjaplan Keflavíkur í Valsmótinu, en leikið er í Íþróttahúsi Kennaraháskóla Íslands;
Fimmtudagur 25. ágúst.
Hér_er_leikjaplanið_í_heild_sinni.
Leikreglur: Riðlakeppni er 2 x 12 mínútur, án leikhléa. Úrslitaleikur er 2x18 mínútur með einu leikhléi á hvort lið í hvorum hálfleik. Hálfleikur í öllum leikjum er 3 mínútur. Að öðru leyti gilda reglur KKÍ um körfuknattleik.
Skipuð verður aganefnd sem dæmir í þeim agabrotum sem upp kunna að koma á mótinu.