Vegleg gjöf
Aðalstuðningsmaður Keflavíkur í körfu fékk vænlega gjöf í leik Keflavíkur og Fsu.
Ástvaldur Ragnar Bjarnason var kallaður upp í hálfleik, en þar var kominn fyrirliði Keflavíkur, Jón Norðdal. Þar sem að hann afhenti Ástvaldi glænýjan Keflavíkur búning en karlalið Keflavíkur ákváðu að gefa sínum heitasta stuðningsmanni smá gjöf. Sjá mátti að Ástvaldur var himinlifandi og ekki skemmdi fyrir að Keflavíkur liðið gjörsamlega tóku Fsu menn í bakaríið og sjá máttu eftir leik að hann var sáttur með sína menn.