Vel heppnað Ljósanæturhlaðborð KKDK
Körfuknattleiksdeildin í Keflavík þakkar stuðninginn. Með Kela Keflvíking í broddi fylkingar blés deildin til morgunverðar í TM-höllinni s.l. laugardag í þriðja sinn. Mikill fjöldi gesta styrkti starfsemina með því að mæta og njóta veitinga. Gaman er að geta þess að Keflvíkingar fæddir 1965 tóku daginn snemma og mættu í morgunverðinn áður en þeir héldu í árgangagönguna. Deildin vill þakka þeim Óla Ásmunds, Kalla Óskars, Guðjóni ,,vikapilti´´ Skúla., starfsfólki íþróttahússins og fjölda fyrirtækja fyrir ómetanlega aðstoð.
Sjáumst að ári!
Stjórn KKDK