Fréttir

Körfubolti | 20. apríl 2003

Verðlaun á lokahóf KKÍ – fyrri hluti – hamingjuóskir

Heimasíðan vill óska öllum verðlaunahöfum KKÍ til hamingju með afrek sín á nýliðinni leiktíð. Allir verðlaunahafar stóðu sig vel, lögðu hart að sér á leiktíðinni og geta glaðst yfir viðurkenningunum.

Nokkrir Keflvíkingar komu við sögu, Sverrir Þór og Birna voru valin bestu varnarmennirnir og Damon, Erla og Birna voru valin í lið ársins. Eins voru Svava Stefánsdóttir og Gunnar Einarsson heiðruð fyrir afburða 3ja stiga hittni, auk þess sem Sverrir Þór var valinn prúðasti leikmaðurinn. Sonia Ortega stal flestum boltum í kvennadeildinni og gaf einnig flestar stoðsendingar. Til hamingju öll sömul!