Fréttir

Körfubolti | 20. apríl 2003

Verðlaun á lokahóf KKÍ – seinn hluti – hugleiðingar

Að veita einstaklingsverðlaun í hópíþrótt er oft erfiðleikum háð vegna þess að það er liðið sem er sigurvegari en ekki einstaklingurinn. KKÍ hefur um árabil veitt einstaklingsverðlaun og hefur kosið að láta leikmenn fylla út “kosningaseðla” ár hvert, áður en úrslitakeppnin hefst. Þetta fyrirkomulag hefur stundum valdið deilum og viljum við leggja nokkur orð í púkkið, eina ferðina enn.

Fyrir ári var skrifuð grein á heimasíðunni þar sem talið var undarlegt að yfirburðalið vetrarins, Njarðvík, hefði ekki fengið a.m.k. eitt af "stóru" verðlaununum, þ.e. besta þjálfarann, besta leikmanninn, eða besta útlendinginn. Við töldum þetta úr takt við raunveruleikann einfaldlega af því að ef eitthvert lið er langbest þá hlýtur getumunurinn að miklu leyti að felast í leikmönnum og þjálfara, eða hvað?

Jæja, nú er liðið eitt ár og aftur gerist það sama, nema hvað nú eiga í hlut Keflvíkingar en ekki Njarðvíkingar. Já, og nú er um að ræða bæði kvenna- og karlalið. Kvenna- og karlalið Keflavíkur höfðu meiri yfirburði en áður hafa sést og töpðu t.d. ekki einum einasta leik í undanúrslitum og úrslitum Íslandsmótsins, auk þess sem liðin hirtu nánast öll verðlaun sem í boði voru. En eins og árið áður þá eiga langbestu liðin ekki bestu þjálfarana, ekki bestu leikmennina og ekki bestu útlendingana. Maður spyr bara, hvernig gátu þau unnið svona auðveldlega? Maður spyr líka, er það eðlilegt að sigursælasti þjálfarinn sé aldrei verðlaunaður? Er hann bara alltaf svona heppinn? Ekki hafði hann þó bestu leikmennina sér við hlið, ef marka má verðlaunin . . .

Það kemur í ljós, ár eftir ár, að fyrirkomulag KKÍ til að veita einstaklingsverðlaun er gengið sér til húðar. Ástæðurnar eru margar, en kannski tvær helstar. Annars vegar er algerlega horft fram hjá úrslitakeppninni sem þó er lang mikilvægasti hluti vetrarins og hins vegar er það staðreynd að oft er framkvæmd kosninga hjá leikmönnum allt annað en eðlileg. Þess vegna er tími til kominn að endurnýja verðlaunaferlið hjá KKÍ, ef menn vilja að þetta verði tekið alvarlega.

Að lokum, heimasíðan viðurkennir fúslega að vera ekki hlutlaus í þessum efnum (hver er það?) en að okkar mati hefðu verðlaunin átt að vera svona:

  • Bestu þjálfarar: Sigurður og Anna María, bæði Keflavík
  • Bestu leikmenn: Damon og Birna, bæði Keflavík
  • Bestu erlendu leikmenn: Stevie Johnson, Haukum og Denise, Grindavík

ÁFRAM KEFLAVÍK!!!