Vertu merktur Keflvíkingur
Meistaraflokksráð Keflavíkur hefur hafið sölu á stórglæsilegum og vönduðum Keflavíkur derhúfum. Verðið fyrir húfurnar er 3000 kr. stk. en þær fást í bláum, hvítum og svörtum lit. Bláu húfurnar eru "adjustable" en hvítu og svörtu eru "one size fits most", eins og það er orðað. Keflavíkurmerkið er saumað í húfurnar og því um vandaða vöru að ræða.
Í samtali við heimasíðu Keflavíkur sagði Þorsteinn Kristinsson, einn forsprakka meistaraflokksráðs, að pöntunum væri þegar farið að rigna inn þó auglýsingin hafi aðeins lifað í nokkrar mínútur á Facebook. Er því ljóst að Keflvíkingar, jafnt ungir sem aldnir, ætla að vera vel merktir í vetur!
Pantaðu þér derhúfu með því að senda tölvupóst á lukkustrakar@gmail.com