Fréttir

Körfubolti | 11. desember 2003

Við erum komnir í 8 liða úrslit í Vesturdeildinni, spurning um heimavallarrétt

Nú getum við aldrei lent neðar en í 3ja sætinu í B-riðli Vesturdeildar í Bikarkeppni Evrópu. Madeira á aðeins einn leik eftir, gegn okkur, og getur ekki náð okkur að stigum. En við getum enn lent í fyrsta, öðru eða þriðja sætinu í riðlinum. Við höfum nú fengið 7 stig úr fjórum leikjum (ath. að tvö stig fást fyrir sigur og eitt fyrir tap), Ovarense sömuleiðis, en Toulon hefur 7 stig eftir fimm leiki. Þeir geta því að hámarki náð 9 stigum (með sigri á útivelli gegn Ovarense), en við erum öruggir með 9 stig. Ef við hins vegar vinnum annan hvorn leikinn í Portúgal í næstu viku, náum við 10 stigum. Og það skiptir máli.

Því að þriðja sætið gefur okkur vissulega sæti í 8 liða úrslitum Vesturdeildar, en annað og fyrsta sætið gefa okkur heimavallarrétt í 8 liða úrslitunum. Þetta er mikilvægt, því í 8 liða úrslinum þarf að vinna tvo leiki til að komast áfram í "fina four" innan deildarinnar. Sem sagt, ef við lendum í öðru af tveimur efstu sætunum, munum við hefja 8 liða úrslitin á heimavelli, en ef við lendum í 3ja sæti riðilsins munum við hefja 8-liða úrslitin á útivelli.

Sé tekið mið af því að við höfum nú unnið 24 leiki í röð á heimavelli, og ekki tapað þar síðan 7. jan. s.l., þá sést gjörla að það skiptir máli fyrir okkur að hefja úrslitakeppnina á heimavelli. Þess vegna þyrftum við helst að sækja einn sigur til Portúgals. . . . . . Og svo má ekki gleyma því að innbyrðis úrslit geta skipt máli, þannig að ef við töpum gegn Ovarense og/eða Madeira, þá væri mikilvægt að tapa með minni mun en við höfum unnið með. Svo einfalt er það . . .