Við viljum sjá ÞIG í húsinu á morgun!
Síðasti leikur Keflavíkur og Tindastóls í 8-liða úrslitum karla fer fram á morgun. Bæði lið hafa tekið einn sigur og á morgun mun það koma í ljós hvaða lið kemst áfram í 4-liða úrslitin. Ljóst er að leikurinn verður ekki sýndur á Stöð 2 Sport og þar af leiðandi mikilvægt fyrir alla að mæta til að styðja við bakið á strákunum. Það er mikilvægt að finna fyrir miklum stuðning í leikjum sem þessum og sá stuðningur kemur m.a. frá áhorfendum sem mæta á leikinn. Leikurinn fer fram í Toyota-Höllinni og hefst hann klukkan 19:15.
Það skal tekið fram að Vildarvinakortin gilda ekki á leikinn á morgun.
Áfram Keflavík!