Viðtal við Beggz trommara
Bergsveinn Alfons Rúnarsson er einn höfuðpaura í trommusveitinni Keflvísku. Trommusveitin hefur sett svip sinn á leiki Keflavíkur síðustu ár og vakið á sér athygli fyrir að mynda frábæra stemmingu á leikjum. Heimasíðan náði tali af Beggz eins og hann er oft kallaður og spurði hann nokkra spurninga.
Hvenær var trommusveitin stofnuð?
Heyrðu það eru komin 3 ár og við erum að sigla inn í það fjórða.. Það er titill á hverju ári síðan við byrjuðum. Það eikur stemminguna hjá okkurJ
Hvað eru margir meðlimir í hópnum?
Við erum 12 held ég í dag. Svo koma margir með sem eru ekki í hópnum og taka vel undir með okkur.
Það hafa heyrst margir skemmtilegir söngvar frá ykkur á leikjum, hver semur textana?
Heyrðu það er bara hver sem er. Jói hefur iðkað þetta mest undanfarið, ég er pottþéttur á því að það á einhver eftir að drukkna í Lóninu á meðan hann er á vakt. Hann er alltaf að búa til eitthvað í vinninnu.
Eru einhverjar nýungar í væntum hjá ykkur í vetur?
Við erum að vinna í að finna eitthvað skemmtilegt. Það er pottþétt að ljósa-showið verður betra en í fyrra, ÞEGAR við förum í úrslitakeppninaJ
Áttu þér einhern uppáhalds leikmann í Keflavíkurliðinu?
Auðvitað Dóri stóri. hann er svo mikil dúlla…. J
Nú hafið þið komist í blöðin nokkrum sinnum, má vænta einhvers svoleiðis í vetur?
Það er aldrei að vitaJ Við stefnum á að komast í séð og heyrt næstJ
Hvernig lýst þér á tímabilið í vetur og hvaða lið heldur þú að verði sterkust?
Mér lýst bara mjög vel á þetta. Liðið hefur byrjað vel og góður andi í liðinu. Þetta verður kannski aðeins jafnara en áður en við tökum þetta á endanumJ
Hvaða leikir eru skemmtilegastir?
Keflavík á móti njarðvík er alltaf helvíti gaman. En síðustu 2 ár var skemmtilegast að vinna SnæfellJ
Er einhver leikur minnistæðari en aðrir?
Hummmm…… Keflavík – Grindavík í einhverjum bikarleik hér um árið. Grindavík var að vinna þegar nokkrar sek voru eftir en þá kom Daimon nokkur Johnson og skoraði 3ja stiga buzzer og við unnum..Það varð allt vitlaust í húsinu og mig minnir að ein tromman hafi orðið undir í látunum og brotnaðJ Gleymist seint…..
Við þökkum Beggz fyrir spjallið og hvetjum alla Keflavíkinga til að mæta á leiki í vetur og taka undir með trommusveitinni...... Áfram Keflavík