Fréttir

Karfa: Hitt og Þetta | 4. október 2005

Viðtal við Sigurð Ingimundarson þjálfara

Mér datt í hug um daginn að leggja nokkrar spurningar fyrir Sigga Ingimundarson þjálfara, hann tók vel í það og hér er niðurstaðan:

 

Hvernig lýst þér á deildinna í ár og hvað lið heldur þú að verði sterkust?

 

Líst vel á deildina , hún er svipuð og hún hefur verið undanfarin á og ég á ekki von á stórvægilegum breytingum hjá liðunum, flest eru að gera svipaða hluti og þau hafa verið að gera og virðast öll líta nokkuð vel út á þessum tíma.

Leikmannahópurinn hefur verið mjög breiður síðustu ár, er það ekki stór hluti að velgengni liðsins?

Keflavíkurliðið er vel mannað og hefur verið það lengi, breiður hópur hefur að mörgu leiti skapað þessa miklu sigurhefð. Leikmenn hafa lagt mikla vinnu á sig og uppskeran hjá þeim hefur oft verið glæsileg. Það er eftirtektarvert að leikmenninrnir hafa spilað lengi saman og haldið hópinn vel.Þó að flestir gætu fengið að spila meira annarsstaðar þá sætta þeir sig við sín hlutverk og það er einkenni mikla sigurvegara að setja liðið ofar öllu.

 

Er ekkert erfitt að þjálfa stráka sem eru búnir að verða meistarar síðustu þrjú árin, þeas að fá hungrið í þá fyrir leiki í vetur?

Þótt að liðið hafi verið meistari seinustu 3 árin , þá kenni ég ekki nein merki um að sigurviljinn sé neitt minni heldur en áður.

 

Hvernig fer það saman að vera þjáflari Keflavíkur og landsliðsins?

Ég hef verið að þjálfa Keflavík og landsliðið og það hentar bara nokkuð vel saman. Eftir að árinu var skipt upp á milli landsliða evrópu og félagsliða þá koma ekki til neinir árekstar þar á milli. Hinsvegar fer undirbúningur liðsins fram á tíma sem landsliðið era ð spila og þar auðvitað þarf að finna  fáð við því. Ég hef búið svo vel hjá Keflavík að þar er starfið í föstum og góðum skorðum og leikmenn leggja á sig mikla vinnu til að hlutirnir ganga vel. Einnig hef ég fengið aðstoð hjá ekki ómerkari mönnum en Fal H. og Guðjóni S. og þar eru nú haukar sem gott er að eiga í horni.

 

Nú erum við komnir með 3 nýja erlenda leikmenn, hvernig lýst þér á þá?

Nú í ár erum við með 3 nýja leikmenn sem ekki eru frá Fróni. Þar sem reglur kveða á um einn leikmann frá BNA. Þá brugðum við á það ráð að fá til liðs við okkur leikmann frá Makedóníu, Zlatkó að nafni sem á að leysa miðherjastöðuna fyrir okkur. Hann á eftir að reynast okkur vel í vetur. Jason er BNA leikmaðurinn okkar fjölhæfur og mikill liðsmaður. Nýjasti liðsmaðurinn okkar AJ Moye er hingað kominn til að keppa með okkur í evrópukeppninni.

 

Nú styttist í Evrópukeppnina, og erum við að taka þátt í þriðja skiptið, og reynslan orðin þó nokkur hjá strákunum, heldur þú að það skili sér í ár?

Nú keppum við í 3ja skiptið í evrópukeppninni og  leikmenn eru reynslunni ríkari. Það að leikmenn keppi í þessari keppni og við meira álag, hefur gert þá alla að betri leikmönnum. Við höfum haft það að markmiði að gera betur í hvert skipti sem við keppum í þessari keppni og ætlum að gera það áfram.

 

Hvernig lýst þér á liðin sem við spilum við í Evrópukeppninni í ár?

Liðin sem við keppum við núna eru sennilega betri heldur en við höfum áður kept við , keppnin í ár er betri heldur en hún hefur verið áður.

 

Þeir erlendu leikmenn sem hafa verið að spila með okkur í Evrópukeppninni hafa verið að fá samning hjá sterkum klúbbum í Evrópu, hefuru fundið fyrir meiri áhuga hjá leikmönnum að koma og spila með Keflavík?

Leikmennirnir sem hafa spilað með okkur í evrópukeppninni hafa allir komist í stórar deildir í evrópu og það berst náttúrulega manna á milli þannig að nú er betra fyrir okkur að fá leikmenn til að spila fyrir okkur.

 

Hvaða lið styðurðu í NBA?

Boston Celtics að sjálfsögðu, ég er nokkuð viss um að allir leikmenn í liðinu hjá mér halda með Celtics og er það hið besta mál.

Að lokum hvert er markmið vetrarins?

Markmið vetrarins eru ljós en enn eigum við og leikmenn eftir að gera þau ljós þannig að ég svara þessari spurningu síðar.

Siggi I.