Viltu hvítan Keflavíkurbol fyrir bikarúrslitaleikinn?
Stuðningsmenn Keflavíkur eru hvattir til að klæðast hvítu á bikarúrslitaleik Keflavíkur og Grindavíkur í Laugardalshöllinni nk. laugardag. Keflavíkurstúlkur verða í hvítum búningum og því tilvalið að mynda alvöru stemmningu í stúkunni og mæta í hvítu. Þeir sem hafa áhuga á að næla sér í hvíta Keflavíkurboli (sjá á meðfylgjandi mynd) geta mætt í TM-Höllina milli kl. 10:00 og 11:00 á laugardaginn en þar mun stjórn Keflavíkur gefa stuðningsmönnum sem ætla í höllina slíka boli.
Kíkið við og nælið ykkur í boli en um 200 bolir verða gefnir! Fyrstir koma - fyrstir fá.
Áfram Keflavík