Fréttir

Körfubolti | 25. mars 2005

Virðing fyrir leiknum – hvað er það?

Á heimasíðu ÍR er að finna pistil sem heitir “Virðing fyrir leiknum – hugleiðingar í miðri úrslitakeppni”. Pistillinn er skrifaður af ÞE og lýsir á óbeinan hátt þeirri skoðun að leikmenn Keflvíkinga hafi hagað sér ósæmilega í leik númer tvö í Seljaskóla. Er það í beinu framhaldi af þeirri umræðu sem átti sér stað á heimasíðu ÍR-inga og víða á spjallsíðum um að áhorfendur Keflvíkinga hafi hagað sér illa og verið dónalegir með því að gerast svo djarfir að hrópa “Áfram Keflavík” þegar þeim sýndist. Greinilegt er á öllu að ÍR-ingar eru óvanir úrslitakeppni, þeir eru ekki vanir látunum, hvorki á leikvellinum né á áhorfendabekkjunum. Þeim finnst því að allir í kringum Keflavík hagi sér illa. Þeir hafa að sjálfsögðu fullan rétt á þeirri skoðun og truflar hún okkur ekkert. Vonandi læra þeir þó af reynslunni og fara að hafa meira gaman af þessu.

Heimasíðunni langar stuttu máli aðeins að fjalla um grein ÞE. Reyndar fer ÞE í grein sinni eins og köttur í kringum heitan graut, því hann nefnir ekkert beint með nafni, segir aldrei hvað hann í raun á við, heldur gefur bara til kynna að Keflvíkingar beri ekki “virðingu fyrir leiknum” (hvað svo sem það þýðir) og að þeir hagi sér illa. Skoðum þetta aðeins nánar.

ÞE segir í grein sinni: “Nú er leyfður mun harðari leikur og snertingar litnar öðrum augum en í venjulegum deildarleikjum, ekki síst varðandi átök milli manna án bolta. Þetta er rammi sem hinir sjóuðu mótherjar okkar þekkja út í ystu æsar og notfæra sér til að ná leiknum í sínar hendur.” Sem sagt Keflvíkingar eru “dirty” og ná forystu með því að vera grófir. Æjæ, vondir strákar. Greyið ÍR-ingarnir, Fannar og félagar, þessar elskur sem aldrei beita bolabrögðum. Þeim hlýtur að hafa orðið órótt að mæta þessum grófu Keflvíkingum.

Í framhaldi af þessu segir ÞE, áfram að velta fyrir sér grófum leik Keflvíkinga: “Af þessum sökum var mjög einkennilegur körfubolti í gangi í fyrri hálfleik, þar sem allt var á suðupunkti og Keflvíkingar gerðu út um leikinn. Það er væntanlega erfitt og vandasamt fyrir dómara svona leikja að draga mörkin, en eðlileg krafa að ekki sé um háskaleik að ræða. Leikmenn og áhorfendur eru komnir til að sjá spennandi og skemmtilegan körfubolta, en ekki hópslagsmál.” Bíddu við, hópslagsmál? Um hvað er maðurinn að tala? Á hvaða leik var hann? Keflvíkingar réðust sem sagt á ÍR-inga, í hópum, án þess að nokkur tæki eftir því og náðu þannig forystunni í leiknum, eða hvað?

Að lokum klykkir ÞE út með ótrúlegustu málsgrein sem við höfum séð lengi:  “Við þessar aðstæður verður að ríkja virðing fyrir íþróttinni sjálfri og þeim fjölmörgu aðilum sem fylgjast með. Alltof oft var í gangi ögrandi framkoma milli ákveðinna leikmanna og áhorfenda, ljótt orðbragð og dónaskapur sem hvergi á að sjást, allra síst frá leikmönnum sem hafa íþróttina að atvinnu sinni. Það verður að hafa hugfast að í hópi áhorfenda eru þeir aðilar sem halda rekstri félaganna gangandi, fólk sem leggur á sig ómælda ólaunaða vinnu í þágu íþróttarinnar. Þetta fólk er ekki komið til að horfa á fíflagang og bjánalæti af þessu tagi." Hvað er maðurinn að tala um hér? Í stað þess að segja “ákveðinna leikmanna” af hverju segir hann ekki hvern eða hverja hann er að meina? Við gerum ráð fyrir því að hann sé a.m.k. að einhverju leyti að tala um Nick Bradford, þann frábæra leikmann og góða félaga sem gerir hvern leik skemmtilegri með því að gantast í áhorfendum, bæði sínum eigin og stundum andstæðinganna. Hvaða “dónaskap sem hvergi á að sjást” er ÞE að tala um? Af hverju segir hann það ekki? Og hvað er málið með “virðingu fyrir íþróttinni”? Um hvað er ÞE að tala?

Bara til að hafa það á hreinu, þá er ekki hægt að bera meiri virðingu fyrir körfuboltaíþróttinni en Keflvíkingar gera og hafa gert í langan tíma. En stór partur af virðingu fyrir íþróttinni er að öðlast fullkomna þekkingu á henni, æfa og þjálfa til að ná hámarksárangri og kunna svo vel á hverja einustu hlið hennar, að menn viti nákvæmlega hvað þarf að gera til að ná árangri. Kannski ÞE og ÍR-ingar átti sig á því einhvern daginn.

Við þökkum ÞE annars fyrir ágætan pistil, en biðjum hann næst að segja beint út hvað hann er að meina svo við þurfum ekki að kljást við hálfkveðnar vísur. Við bjóðum svo ÍR-inga velkomna í Sláturhúsið á morgun og vonum að þeir fari nú að njóta þess að takast á við Keflavík í úrslitakeppninni í stað þess að kvarta og kveina yfir öllum mögulegum hlutum. Welcome to the Play-offs!