"Wild Thing" Wilson hjá Ovaerense
Það er ljóst að aðalleikmaður Ovarense - Michael "Wild Thing" Wilson er enginn meðalmaður og til gamans má geta þess að vinsælasta körfuboltablað í heimi í dag Slam valdi 50 bestu troðara í heimi frá upphafi fyrr á árinu og voru megnið af þeim útvöldu leikmenn NBA deildarinnar.
1. Vince Carter
2. Michael Jordan
3. Dominique Wilkins
4. Julius Erving
5. Jackie Jackson
6. Wilt Chamberlain
7. David Thompson
8. Spud Webb
9. Charles Barkley
10. Phi slama jama- Houston liðið sem Drexler spilaði með
11. Darryl Dawkins
12. Ronnie Fields
13. Michael "Wild Thing" Wilson
Á eftir honum koma svo kappar einsog JR Rider sem vann troðkeppnina í NBA um árið, Kobe Bryant, Shawn Kemp, Steve Francis, Larry Nance, Earl Manigault, Darrell Griffith, Harold"baby Jordan" Miner, Shaquille O´Neal, Jerry Stackhouse, Allen Iverson, Corey Maggette, Tracy McGrady, Chris Webber, Shawn Marion, Scottie Pippen, Kevin Garnett, Latrell Sprewell, Rasheed Wallace.
Í Slam er einnig talað um að Michael"Wild Thing" Wilson hafi mælst með 55' tommu vertical leap. Hann hefur þar að auki troðið mörgum sinnum JAFNFÆTIS frá vítalínu og samkvæmt Dwight Stewart (sem er góðvinur kappans) treður hann mun léttar jafnfætis frá vítalínu en Michael Jordan gerði á annari hér um árið. ÞOKKALEGUR!!!!!!!!
Wild Thing hefur líklega komið áður til Keflavíkur, þó ekki hafi það fengið staðfest, þegar Harlem Globetrotters komu í bæinn í fyrra. Ætli einhver eigi myndir?